Aðalfundur Samtaka um Kvennaathvarf og Sjálfseignarstofnunar Kvennaathvarfsins verður haldinn í sal Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23 í Reykjavík, fimmtudaginn 27. apríl klukkan 17:00 – 19:00.

Dagskrá

  1. Fundur settur, kosning fundarstjóra og ritara
  2. Ársskýrsla athvarfsins kynnt og lögð fram til umræðu
  3. Ársreikningar lagðir fram til umræðu og atkvæðagreiðslu
  4. Fjárhagsáætlun yfirstandandi árs lögð fram til umræðu
  5. Breytingar á samþykktum Samtaka um Kvennaathvarf
  6. Breytingar á skipulagsskrá Sjálfseignarstofnunar Kvennaathvarfsins
  7. Ákvörðun árgjalda samtakanna
  8. Ákvörðun stjórnarlauna samtakanna og Sjálfseignarstofnunarinnar
  9. Kosning stjórnar og varastjórnar samtakanna og skoðunarmanna reikninga samkvæmt 8. gr
  10. Kosning fulltrúa í stjórn og varastjórn Sjálfseignarstofnunar Kvennaathvarfsins og skoðunarmanna reikninga samkvæmt 6. gr.
  11. Kosning fulltrúa samtakanna í fulltrúaráð Arnrúnar íbúðarfélags hses. skv. 6. gr.
  12. Önnur mál

 

Stjórn Samtaka um kvennaathvarf og stjórn Sjálfseignarstofnunar Kvennaathvarfsins

 

Hlekkur á tillögu um breytingar á samþykktum Samtaka um Kvennaathvarf