Kvennaathvarfið er rekið af frjálsum félagasamtökum; Samtökum um kvennaathvarf. Félagar í samtökunum kjósa sér fimm manna stjórn og tvo varamenn á aðalfundi sem haldinn er í apríl ár hvert. Þar eru grundvallarbreytingar á starfsemi Samtaka um kvennaathvarf samþykktar.
Stjórnin sem er ábyrg fyrir rekstri athvarfsins heldur að öllu jöfnu fundi hálfsmánaðarlega og oftar ef á þarf að halda. Á stjórnarfundum hittast stjórn og framkvæmdateymi og bera saman bækur sínar, en stjórnin ber ábyrgð á starfseminni í heild, tekur allar helstu ákvarðanir og leggur drög að starfi framkvæmdateymis.
Stjórn skipa:
- Fríða Bragadóttir, formaður
- Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður
- Árni Matthíasson, ritari
- Elín Jónsdóttir, gjaldkeri
- Edda Ólafsdóttir
Varastjórn skipa:
- Joanna Marcinkowska
- Nadia Borisdóttir
Hægt er að senda póst á formann stjórnar á netfangið: stjorn@kvennaathvarf.is.