Árið 2016 frumsýndi Kvennaathvarfið í Reykjavík teiknimynd sína Tölum um ofbeldi. Aðalmarkmið myndarinnar er að koma ákveðnum skilaboðum til barna og einnig að gera þann hóp barna sem býr við heimilisofbeldi sýnilegri í samfélaginu.

Þau mikilvægu skilaboð sem börnin sitja eftir með eftir áhorf á teiknimyndina eru meðal annars að heimilisofbeldi er ekki einkamál fjölskyldna; að heimilisofbeldi getur átt sér stað í öllum fjölskyldumynstrum og að ofbeldið er aldrei barninu að kenna því það eru fullorðnir sem bera ábyrgð á að börnum líði vel.

Í myndinni hvetjum við börnin til að segja frá ofbeldinu því það er alltaf einhver sem getur hjálpað. Það er líka alltaf hægt að hringja í Barnanúmerið sem er 112. Þar er alltaf opið og alltaf einhver sem svarar þér.

Myndin er gerð fyrir fé sem Jón Gnarr gaf Kvennaathvarfinu í Reykjavík árið 2014. Jafnréttissjóður Íslands styrkti kynningu á efninu í grunnskólum landsins og öðrum stofnunum sem vinna með börnum.

 

 

Hér er svo hlekkur á teiknimyndina á ensku, á spænsku , á rússnensku, á pólsku og linkur á teiknimyndina á norsku.