Umsagnir og ályktanir
Umsagnir um lagafrumvörp
Brottvísun og heimsóknarbann
Umsögn um frumvarp um breytingu á meðferð opinberra mála og almennum hengingarlögum (brottvísun og heimsóknarbann), sent í mars 2006.
Kynferðisbrotafrumvarp:
Umsögn um tillögur til frumvarps um breytingu á kynferðisbrotakafla almennu hegningarlaganna, sent í mars 2006 til dómsmálaráðuneytisins.
Heimilisofbeldislög:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, um heimilisofbeldi, sent í janúar 2006.
Sameiginleg forsjá:
Umsögn um frumvarp sem lögbindur sameiginlega forsjá sem meginreglu við skilnað eða sambúðarslit, sent í janúar 2006.
Útlendingalög:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á útlendingalögum og frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, sent í mars 2005.
Bann við limlestingu á kynfærum kvenna:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, um bann við limlestingu á kynfærum kvenna, sent í janúar 2005.
Fórnarlamba- og vitnavernd:
Umsögn um frumvarp til laga um fórnarlamba- og vitnavernd, sent í nóvember 2004.
Útlendingalög:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á útlendingalögum og frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, sent í apríl 2004.
Fyrningarfrestur í kynferðisofbeldismálum:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á fyrningarfresti í kynferðisofbeldismálum gegn börnum, sent í mars 2004.
Vændisfrumvarp:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum, svokallað vændisfrumvarp, sent í nóvember 2003, sjá einnig bréf til þingfulltrúa frá Kvennahreyfingunni og ályktun frá því í maí 2004.
Brottvísun og heimsóknarbann:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála og almennum hegningarlögum (brottvísun og heimsóknarbann), sent í nóvember 2003.
Ályktanir og áskoranir
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er orðinn fastur liður þar sem fjöldi félagasamtaka og stofnana taka sig saman og vekja athygli á baráttunni gegn kynbundu ofbeldi. Í lok hvers átaks síðustu tvö ára hafa verið samdar áskoranir til stjórnvalda, þær má nálgast hér: 2004 og 2005.
Þann 8. mars 2005, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti, stóðu Samtök um kvennaathvarf með öðrum samtökum að fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum var samþykkt þessi ályktun.
Ályktun vegna breytinga á Neyðarmóttöku vegna nauðgana, unnin í samstarfi við önnur samtök innan kvennahreyfingarinnar. Sjá einnig opið bréf til heilbrigðisráðherra sama efnis.
