Bæklingar
Eftirfarandi bæklingar hafa verið gefnir út á vegum Samtaka um kvennaathvarf og er hægt að nálgast endurgjaldslaust. Hafið samband við Drífu Snædal í síma 561 3740 eða 695 1757 vegna nánari upplýsinga. Með því að smella á heiti bæklinganna er hægt að skoða þá á pdf-formi.
Kvennaathvarf: Þessi bæklingur er almennur kynningarbæklingur Kvennaathvarfsins þar sem farið er yfir þjónustu okkar og skipulag, húsreglur og markmið Samtaka um kvennaathvarf. Bæklingurinn er fjórblöðungur í A5 stærð og er einnig til á ensku, víetnömsku, pólsku og norsku.
Ofbeldi gegn konum: Í þessu hefti er farið ítarlega í heimilisofbeldi; birtingamyndir þess, áhrif og afleiðingar. Birtar eru reynslusögur og reynt að svara algengum spurningum um ofbeldi gegn konum. Bæklingurinn er 43 bls. í A5 stærð.
Ofbeldi í samböndum eða á stefnumótum: Þessi bæklingur er sérstaklega ætlaður fólki á framhaldsskólaaldri og lýst er einkennum þess að um ofbeldissamband sé að ræða ásamt almennum skilgreiningum á ofbeldi. Auk þess er þar að finna mannréttindayfirlýsingu stefnumóta, um réttindi og skyldur fólks í samböndum. Bæklingurinn er í hefðbundnu bæklingabroti.
Börn sem búa við ofbeldi á heimilum: Hér er greint frá áhrifum heimilisofbeldis á börn á mismunandi aldri og hvað vert er að hafa í huga við slíkar aðstæður. Bæklingurinn er í A5 stærð og er einnig til á ensku.
Við hjálpum: Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út lítið kort með símanúmerum Neyðarlínunnar, Kvennaathvarfsins, Stígamóta, Neyðarmóttöku vegna nauðgunar og Hjálparsíma Rauða krossins. Ritað er á íslensku öðrum megin og ensku hinum megin. Hægt er að panta kortin hjá Kvennaathvarfinu líkt og bæklinga.
