Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Greinar

Þann 15. desember 2003 var haldinn fundur í Brussel á vegum samtakanna ENATW (European network against trafficing in women for sexual exploitation). Fundinn sótti Þórlaug Jónsdóttir fyrir Kvennaathvarfið og fylgir hér frásögn af fundinum og baráttumálum ENATW. 

Samtökin voru stofnuð af þeim evrópsku félagasamtökum sem hafa það að markmiði sínu að að berjast gegn verslun með konur til starfa við kynlífsþjónustu á Vesturlöndum og til þess að aðstoða þær konur sem orðið hafa fórnarlömb þessarar nútíma þrælasölu við að losna út úr slíkum aðstæðum. ENATW er því vettvangur til að samræma baráttuaðferðir, koma upplýsingum á framfæri bæði um hvað sé að gerast í aðildarlöndum og til þess að hinir geti hagnýtt og tileinkað sér þær baráttuaðferðir sem best hafa dugað á hverjum stað.

Það er löngu orðið ljóst, að ekki er nægilegt að barist sé gegn þessu ástandi í hverju ríki fyrir sig, heldur er nauðsynlegt að baráttan sé fjölþjóðleg og hvergi séu brotalamir sem geri eitthvert land að öruggu skjóli fyrir glæpastarfsemi af þessu tagi.

Samtökin byggja starf sitt á þeirri hugmyndafræði, að flutningur á konum til kynlífsþjónustu sé fyrst og fremst alvarlegt mannréttindabrot og brot gegn hugmyndum og lögum um jafnrétti kynjanna.  Baráttan þurfi því jöfnum höndum að snúast um að hindra  mansal  af þessu tagi, hjálpa konum  til að losna út úr vændi og  veita þeim síðan raunhæfa aðstoð til þess að þær geti byggt upp líf sitt að nýju, annaðhvort í heimalandi sínu eða í því landi sem þær hafa verið fluttar til.

Ekki er talið nægilegt að baráttan snúist einvörðungu um að veita upplýsingar og gera fólk meðvitað um vandamálið, heldur skuli einnig barist fyrir því að eftirspurnin eftir þjónustunni verði upprætt og sjónarhorni beint að kaupendum kynlífsþjónustu, ekki síður en seljendum.  Má í því sambandi nefna lög sem Svíar samþykktu árið 1999, sem gera kaup á hvers kynlífsþjónustu refsiverða.    

Í mögum löndum er það hins vegar talið vænlegast til árangurs, að gera vændi löglegt og reyna síðan að hafa eftirlit með starfseminni.  Tölur sýna hins vegar, að þar sem þessi háttur er á hafður,  hefur kynlífiðnaðurinn blómstrað sem aldrei fyrr og mun fleiri einstaklingar starfa við þessa iðju en í þeim löndum þar sem vændi er ekki leyft.  Mikill áróður hefur þó verið rekinn fyrir því að þessi skipan mála sé frekar  viðhöfð og til þess að reyna að koma meira jafnvægi á umræðuna hefur ENATW nú opnað vefsíðuna: www.aretusa.net og var síðan formlega opnuð á fundinum í Brussel.. 

Á fundinum gerðu fulltrúar nokkurra landa grein fyrir því hvað helst er á döfinni í þeirra heimalöndum.  Fulltrúi Ítalíu sagði t.d. frá því, að þar í landi gera stjórnvöld það ekki lengur að skilyrði fyrir tímabundnu dvalarleyfi, að vændiskonur vitni gegn þeim aðilum sem fluttu þær landsins.  Unnið er út frá þeirri hugmynd, að með því að vinna traust kvennanna og aðstoða þær við að ná aftur fótfestu  í lífinu,  þá verði þær fúsari til þess að vinna með lögreglunni af fúsum og frjálsum vilja.  Eitt af helstu hagsmunamálunum kvenna sem orðið hafa fórnarlömb mansals til kynlífsþjónustu er, að konurnar eigi þess kost að fá dvalarleyfi í viðkomandi landi í stað þess að vera meðhöndlaðar sem brotamenn og sendar aftur til síns heimalands, en fyrir margar þeirra, þá eru það verri örlög en að halda áfram í vændi.

Af hálfu Íslands talaði Kolbrún Halldórsdóttir og  ræddi m.a. um fund sem haldinn var á Íslandi í júní s.l., fyrir forgöngu Stígamóta og helstu niðurstöðum sem þar komu frá.  Þess má geta, að niðurstöður og erindi sem flutt voru á þeim fundi munu fljótlega birtast á aretusa.net vefnum.   Þá sagði Kolbrún frá frumvarpinu, sem hún hafði forgöngu um að væri flutt á Alþingi á haustmánuðum, þar sem lagt er til að „sænska leiðin“ verði lögleidd, þ.e. að það verði gert refsivert að kaupa kynlífsþjónustu.   Þetta frumvarp er nú flutt í fimmta sinn og hefur, eins og flestum er kunnugt,  fengið mun meiri hljómgrunn heldur en þegar það fyrst var flutt. 

Þórlaug Jónsdóttir

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.