Vefsíða Kvennaathvarfsins

Fréttir
Málum bæinn bleikan
Fögnum 19. júní og lýsum yfir stuðningi við jafnrétti með því að bera eitthvað bleikt þennan dag. Þú getur til dæmis klæðst bleikri flík, flaggað bleiku, sett bleika útstillingu í gluggann hjá þér, borið bleik gleraugu, varalit, blóm o.s.frv., nælt bleika nælu í jakkann þinn... eða bara rifið horn af bleiku blaði og nælt það í barminn. Svona fögnum við 19. júní:


Fréttir
Fræðslu- og framkvæmdastýra óskast
Samtök um kvennaathvarf auglýsa laust til umsóknar starf fræðslu- og framkvæmdastýru. Starfið er fjölbreytt og unnið í nánum tengslum við stjórn samtakanna, rekstrarstjóra og starfskonur. Í því felst umsjón starfskvennamála, stefnumótun, fræðsla og kynning bæði innan athvarfsins sem utan og ábyrgð á innra starfi athvarfsins. Krafist er háskólaprófs. Nánari upplýsingar veitir Drífa Snædal, starfandi fræðslu- ogframkvæmdastýra, í síma 695 1757. Umsóknir skulu berast á netfangið stjorn@kvennaathvarf.is fyrir 20. júní en æskilegt er að ný stýra geti hafið störf sem fyrst.


Fréttir
Auglýst eftir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
Í október á síðasta ári ákvað ríkisstjórnin að semja aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi. Aðdragandinn að þessari ákvörðun var þrýstingur frjálsra félagasamtaka, þar á meðal Samtaka um kvennaathvarf, en nokkur samtök tóku sig saman og sömdu drög að áætlun og lögðu fyrir ráðamenn. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var vel fagnað af þessum samtökum sem öðrum. Í fréttatilkynningu sem ríkisstjórnin sendi frá sér af þessu tilefni kom fram að: Áætlunin skal liggja fyrir til umfjöllunar í ríkisstjórn eigi síðar en 3. mars 2006. Því miður hefur aðgerðaáætlunin ekki enn verið birt og því er hér með auglýst eftir henni.


Fréttir
Gjöf frá Zontaklúbbnum Emblu
Zontaklúbburinn Embla hefur fært Kvennaathvarfinu peningagjöf, 100.000 krónur til að fjármagna túlkaþjónustu fyrir konur af erlendum uppruna sem sækja í athvarfið. Embla hefur áður fært athvarfinu slíka gjöf og var túlkaþjónusta síðasta árs að miklu leyti fjármögnuð með þeim sjóð. Samtök um kvennaathvarf kunna Emblum bestu þakkir fyrir gjöfina og þann styrk sem það er að mikilvægi starfs okkar sé viðurkennt með þessum hætti.


Fréttir
Skrifað undir samning um Karla til ábyrgðar
Samningur um að endurvekja verkefni Karlar til ábyrgðar hefur verið undirritaður af Félagsmálaráðherra og þeim sálfræðingum sem aðstoða ofbeldismenn við að hætta að beita ofbeldi. Samningurinn felur í sér fjárframlög sem tryggja starfið að minnsta kosti út árið 2007. Að því loknu mun verkefnisstjórn meta þörf á framhaldinu, en hana skipa fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og Samtaka um kvennaathvarf. Með þessu er mikilvægum áfanga náð í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og staðfestir þá sýn stjórnvalda að ofbeldi er samfélagslegt vandamál á ábyrgð þeirra sem því beita. Stjórn og starfskonur Samtaka um kvennaathvarf fagna áfanganum og hlakka til að fást við verkefnið framundan. Jafnframt er óskað eftir því að Karlar til ábyrgðar sé fyrsta skrefið í átt að umfangsmiklum aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.


Fréttir
Áskorun: Vændi er ekki íþrótt

Fulltrúar íslensku kvennahreyfingarinnar hafa afhent eftirfarandi áskorun Þýska sendiráðinu og Knattspyrnusambandi Íslands:

Í júní og júlí næstkomandi fer fram heimsmeistarakeppnin í fótbolta í Þýskalandi. Því miður hefur vændi verið lögleitt sem hver önnur atvinnugrein þar í landi og samkvæmt alþjóðasamtökunum Coalition Against Trafficing in Women er undirbúningur hafinn til að flytja inn 40.000 konur frá mið- og austur Evrópu. Þessar konur, eiga að ?þjóna? þeim körlum sem leggja leið sína á heimsmeistarakeppnina.




Fréttir
Kynferðisbrotafrumvarpið ekki til afgreiðslu
Frumvarp til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna, sem lagt var fram af dómsmálaráðherra, kom ekki til afgreiðslu á nýafstöðnu þingi. Það er því ljóst að frumvarpið verður endurflutt á næsta þingi og vonandi með einhverjum breytingum. Helst ber að nefna að kvennahreyfingin hefur hvatt til þess að sænska leiðin í vændismálum verði farin, þ.e. að kaupendur vændis verði gerðir ábyrgir.



 
www.kvennaathvarf.is | kvennaathvarf@kvennaathvarf.is