Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Stjórn

Aðalfundur, haldinn í apríl ár hvert, kýs fimm manna stjórn og tvo varamenn. Þar eru grundvallarbreytingar á starfsemi Samtaka um kvennaathvarf samþykktar.

Lög Samtaka um kvennaathvarf

Stjórn heldur að öllu jöfnu fundi hálfsmánaðarlega og oftar ef á þarf að halda. Á stjórnarfundum hittast stjórn og framkvæmdateymi og bera saman bækur sínar, en stjórnin ber ábyrgð á starfseminni í heild, tekur allar helstu ákvarðanir og leggur drög að starfi framkvæmdateymis. Stjórn markar stefnu hvers árs og hér má lesa stefnu stjórnar fyrir árið 2006.

Framkvæmdateymi samanstendur af:

  • Fræðslu- og framkvæmdastýru
  • Rekstrarstjóra

Hver starfsmaður í framkvæmdateymi ber ábyrgð á daglegum rekstri síns starfssviðs. Starfsmenn í framkvæmdateymi samræma vinnu sína og taka sameiginlegar ákvarðanir. Framkvæmdateymi heldur fundi vikulega.

Samtök um kvennaathvarf voru grasrótarsamtök frá upphafi og allt til ársins 1995. Kvennaathvarfið er nú rekið sem sjálfseignarstofnun undir stjórn Samtaka um kvennaathvarf.

Daglegur rekstur er í höndum Þórlaugar Jónsdóttur rekstrarstjóra og Sigþrúðar Guðmundsdóttur fræðslu- og framkvæmdastýru athvarfs.

Stjórnina skipa:

  • Þórdís Guðmundsdóttir, formaður
  • Tatjana Lationvic, varaformaður
  • Hanna Rún Sverrisdóttir, meðstjórnandi
  • Steinunn Stefánsdóttir, gjaldkeri
  • Þórdís Eygló Sigurðardóttir, ritari

Í varastjórn sitja

Urður Gunnarsdóttir

Guðrún Herborg Hergeirsdóttir

Sendið póst á stjórnina: Hérna

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.