Sjálfshjálparhópar
Sjálfshjálparhóparnir eru lokaðir hópar sem hittast á fimmtudagskvöldum í Kvennaathvarfinu á milli klukkan átta og tíu. Í hverjum hóp eru 6-8 konur og er starfskona Kvennaathvarfsins með hópnum í tíu skipti. Eftir það ákveður hópurinn sjálfur hvort hann hittist áfram. Markmið hópastarfsins er að konur með svipaða reynslu að baki geti hist og styrkt hver aðra til sjálfshjálpar. Til að skrá sig í hóp getur kona hringt í síma 561 1205 og er svo haft samband við hana þegar næsti hópur fer í gang. Hvert skipti kostar 500 krónur, þ.e. hið skipulega 10 skipta hópastarf kostar 5.000 krónur. Hægt er að fella niður þetta gjald vegna sérstakra aðstæðna. Það á aldrei að vera háð peningum hvort kona getur leitað sér aðstoðar.
Til þess að allt gangi vel fyrir sig eru nokkrar reglur sem hópurinn fylgir:
- Skyldumæting, mætum á réttum tíma , nauðsynlegt er að láta leiðbeinanda eða starfskonur Kvennaathvarfsins vita um veikindi sem er eina löglega afsökunin fyrir að mæta ekki.
- Við sýnum öðrum konum í hópnum virðingu og umburðalyndi.
- Við hlustum á aðrar án þess að grípa fram í.
- Við virðum tímarammann.
- Við virðum trúnað við aðrar konur.
- Við göngum frá eftir okkur, vöskum upp, lokum gluggum og slökkvum ljósin.
- Neysla áfengis eða annara lyfja á fundum er brottrekstrasök.
Umræðuefni eru ákveðin fyrirfram en starfskona metur það hversu stíft dagskránni er fylgt eftir. Meðal umræðuefna er:
- Barnið og unglingurinn.
- Sjálfsvirðing
- Skömm og sektarkennd
- Meðvirkni og mörk
- Hræðsla og kvíði
- Traust
- Sorgin
- Kynlíf
- Að bera ábyrgð á eigin lífi
- Fyrirgefningin
- Framtíðin
Konur eru eindregið hvattar til að nýta sér þessa áhrifaríku leið til sjálfsstyrkingar.
