Greinar
Sigríður Halldórsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði
Netfang: sigridur@unak.is
Tími: allt að 1 klst
Verð: 15.000
Í fyrirlestrinum er gerð grein fyrir rannsóknum á heimilisofbeldi frá sjónarhóli kvenna sem þolenda. Fyrirlesturinn er ætlaður öllum þeim sem vilja dýpka skilning sinn á áhrifum ofbeldis á konur og hvernig hægt er að aðstoða þær til betra lífs án ofbeldis.
Sigríður Halldórsdóttir gerir í fyrirlestrinum grein fyrir rannsóknum sínum á heimilisofbeldi frá sjónarhóli kvenna sem þolenda. Rætt var við sex konur og ferli ofbeldissambanda kortlagt út frá konunni. Rakið er ferlið frá upphafi ástarsambands, niðurbrotinu er lýst og svo þegar botninum er náð og konan sýnir engin viðbrögð lengur. Þá lýsir Sigríður vöknun, þegar konur brjótast út úr vítahring ofbeldisins og hvernig þær finna leiðina til bata. Fyrirlesturinn er ætlaður öllum þeim sem vilja dýpka skilning sinn á áhrifum ofbeldis á konur og hvernig hægt er að aðstoða þær til betra lífs án ofbeldis.
Heimilisofbeldi er vandamál sem oft er hulið augum annarra en þolenda. Í rannsókn þessari var notast við Vancouver skólann í fyrirbærafræði til að komast að grundvallarþáttum heimilisofbeldis frá sjónarhóli kvenna sem þolenda. Eftirfarandi þemu komu fram í rannsókninni eftir að rætt hafði verið við sex konur:
Í upphafi. Þar lýsa konurnar sambandi sínu við manninn í upphafi. Þær segja allar (með mismunandi hætti): "Ofbeldið var þarna ég lokaði bara augunum fyrir því". Konan vonar að ofbeldisatvik endurtaki sig ekki. Hún notar mikinn tíma og mikla orku í að byggja upp sjálfstraust mannsins og trúir orðunum að hann elski hana en ekki athöfnum hans sem oft lýsa mikilli grimmd í hennar garð. Hún reynir að þóknast honum eins og hún mögulega getur. Á þessu tímabili grætur konan mikið.
Ferli niðurbrotsins (The Silencing Process/The Breaking Down Process). Þar lýsa konurnar hvernig maðurinn braut þær niður smám saman. Á þessu tímabili sýnir konan stundum reiði sem einkennist af vondaufri sjálfsvörn hinnar hjálparlausu.
Í klóm dauðans (Reaching the Bottom/In the Jaws of Death) Á þessu tímabili viðhefur maðurinn stöðuga niðurlægingu í orðum og athöfnum, sker á öll tengsl hennar við aðra og tekur allt frá henni. Hún hefur ekkert rými, er algjörlega aðþrengd. Þessu fylgir ólýsanleg þjáning, sem samt er ótjáð. Konunni finnst hún líflaus eins og dauðadæmd kona í gini dauðans. Á þessu tímabili sýnir konan engin viðbrögð lengur, engin tilfinning bærist í henni, hún er "lifandi dauð".
Vöknunin (The Awakening – Breaking the Silence). Þetta tímabil einkennist af því að eitthvað eða einhver kemur konunni til hjálpar og eins og hrífur hana úr klóm dauðans. Hjartað þiðnar og hún byrjar að finna fyrir tilfinningum aftur. Konan rífur vítahringinn sem hún hefur verið í og leitar sér hjálpar á persónulegum grunni eða faglegum (þ.e. hjá fagaðilum). Hún byrjar að tala sér til heilbrigðis.
Leiðin til bata (The Road to Recovery) er flestum löng og ströng. Konan tekur þá innri ákvörðun að standa með sjálfri sér og eigin orðum. Hún setur sér það innra markmið að verða heil kona á ný og leggja allt annað til hliðar. Í sumum tilvikum smáeykur konan persónulegt rými sitt en í öðrum tilvikum leitar konan strax skilnaðar (Í dauðafasanum er konan svo "dauð" að hún getur ekki leitað skilnaðar, hún er algjörlega ófær um bæði þá ákvörðun og þá framkvæmd).
Ástandið í dag (The Present Situation) er í flestum tilvikum mjög gott. Konunum finnst mest um vert að viðurkenna skaðann sem orðið hefur og horfast í augu við hann og vinna stöðugt að því að byggja sig upp.
Horft til framtíðar (Looking Towards the Future). Framtíðarviðhorf kvennanna er yfirleitt mjög jákvætt. Hver og ein leitast við að verða hamingjusöm og virk kona sem með reisn er ábyrg gagnvart öðrum, stendur með sjálfri sér við hlið annarra. Allar eru mjög ákveðnar í að láta aldrei nokkurn kúga sig aftur!
