Greinar
Sólveig Anna Bóasdottir, dr. teol
Netfang: solveig@akademia.is
Tími: allt að 1 klst
Verð: 15.000
Fyrirlesturinn er sniðinn fyrir starfsfólk kirkjunnar. Farið er í skilgreiningar og skýringar á ofbeldi og afstöðu kirkjunnar til þess. Þá er fjallað um hvað kirkjan geti gert og hvernig guðfræðilegar hugmyndir ríma við úrræði.
Raunveruleiki ofbeldisins - að nefna syndina sínu rétta nafni
- Skilgreiningar á ofbeldi
- Greining ólíkra tegunda persðónubundins ofbeldis
- Útbreiðsla.
- *Rannsóknir í Evrópu og víðar, íslensk rannsókn frá 1996
- Ferill heimilisofbeldisis og ferlið sem gerir ofbeldið að eðlilegu og venjulegu fyrirbæri.
Hin fræðilega umræða um ofbeldi – helstu skýringar
Fimm mismunandi skýringar. Athugað hvernig gerandanum er lýst, hvernig fórnarlambinu er lýst, hvað telur viðkomandi skýringarlíkan vera helst til ráða
- Afbrigðileiki – sjúkleiki
- Ofbeldi sem tjáning innri spennu
- Ofbeldi sem miðill og valdatæki
- Ofbeldi sem rökrétt afleiðing ríkjandi félagslegra strúktúra
- Ofbeldi sem lærð hegðun
Áratugur kirkjunnar gegn ofbeldi 2001 - 2010
Heimsráð kirkna (World Council of Churches) hefur ákveðið að helga næsta áratug (2001-2010) í starfi kirkjunnar baráttunni gegn ofbeldi.
Lútherska heimssambandið hefur um langa hríð beint sjónum að vandanmálinu: ofbeldi gegn konum og styður Heimsráð kirkna heils hugar m.a. með því að útbúa framkvæmdaáætlun fyrir hinar evangelísku-lúthersku kirkjun gegn ofbeldi gegn konum. Þessi bæklingur hefur verið þýddur á íslensku og kallast Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum.
Hvað getur kirkjan gert?
- Einkenni feðraveldis í kirkjunni
- Tungumálið um Guð
- Guðfræðilegar hugmyndir sem hafa áhrif á þolendur ofbeldis
