Greinar
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, mannfræðingur
Netfang: gudrungu@hi.is
Tími: allt að 1 klst
Verð: 15.000
Erindi þetta er unnið upp úr mastersritgerð í mannfræði sem ber titilinn: Af hverju nauðga karlar? Eða nánar tiltekið úr þeim hluta hennar sem lýtur að meðferð nauðgunarmála í íslensku réttarkerfi. Fyrirlesturinn er ætlaður lögmönnum og dómurum.
Í erindinu verður núgildandi nauðgunarákvæði skoðað í femínísku ljósi. Annars vegar verður sýnt fram á að hvorki konur né verndun á kynfrelsi þeirra virðist raunverulegt viðmið í lagasetningunni og hins vegar verður fjallað um hvernig áhrif jaðarstöðu kvenna birtast í 194. gr. alm. hgl. og á þyngd refsinga í nauðgunarmálum.
Söguleg tilurð nauðgunarákvæðisins verður rakin allt frá árinu 1869 en þá varð nauðgun fyrst refsiverð í nútímaskilningi hugtaksins og stoðum rennt undir þá hugmynd að karlar úr borgarastétt; veruleiki þeirra, gildismat og reynsluheimur sé viðmiðið í íslenskri löggjöf; nauðgunarákvæðinu þ.á.m. Breytingar á löggjöfinni í tíma verða einnig greindar til að varpa ljósi á hvernig eldri hugmyndir, á borð við konur sem eign karla og að konur með óorð á sér verðskuldi minni refsivernd, lifa enn í núgildandi ákvæði. Þó þær geri það í gerbreyttri mynd viðhalda þær ávallt jaðarstöðu kvenna. Að lokum verða reifaðar tilgátur um hvers vegna þyngd refsinga í nauðgunarmálum sé almennt lág og hvers vegna vægar refsingar í þessum málaflokki stríðir gegn siðferðisvitund almennings.
