Fyrirlestrar um kynbundið ofbeldi
Hér gefur að líta upplýsingar um fyrirlesara og fyrirlestra um kynbundið ofbeldi. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá fyrirlesurunum sjálfum í gegnum netpóst. Hér ættu sem flestir fagaðilar að finna verkfæri til að auka þekkingu og dýpka skilning á kynbundnu ofbeldi. Ef þú vilt koma fyrirlestri í bankann, vinsamlegast hafðu samband við Sigþrúði Guðmundsdóttur í síma 561 3740 eða í netpósti: sigthrudur@kvennaathvarf.is
