Fréttir
Tilnefningar í stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf þann 21. maí verða fimm félagsmenn kosnir í stjórn samtakanna, þrír í aðalstjórn og tveir í varastjórn. Upptillinganefnd gerir tillögu um Steinunni Sigurðardóttur, Þórdísi Eygló Sigurðardóttur og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur í aðalstjórn og Elvu Dögg Ásu og Kristinsdóttur og Fríðu Bragadóttur í varastjórn. Sjálfkjörnar í aðalstjórn verða Tatjana Lationvic og Þórdís Guðmundsdóttur. Framboðum til stjórnar skal skila á skrifstofu samtakanna (pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða í netfangið thorlaug@kvennaathvarf.is) og skulu þau berast í síðasta lagi föstudaginn 14. maí n.k.
