Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Kynbundið ofbeldi og annað ofbeldi

20.10.2004

Í öllum umræðum um Kvennaathvarfið kemur alltaf upp spurningin: Hvað með karla sem eru beittir ofbeldi? Hvert fara þeir og hvaða úrræði eru í boði fyrir þá? Yfirleitt er því svarað á þann veg að Kvennaathvarfið er sprottið upp úr kvennahreyfingunni og hugsað sem athvarf fyrir konur og börn en ekki karla. Ef þörf er á karlaathvarfi þurfa karlar einfaldlega að taka sig til og stofna slíkt en það getur varla verið á ábyrgð kvenna. Það er einfaldlega ekki samræmanlegt að reka athvarf fyrir bæði kynin undir sama húsþaki. Í svarinu felst að auðvitað eru til karlar sem verða fyrir ofbeldi og það skal taka það fram að ofbeldi er aldrei réttlætanlegt sama hver verður fyrir því. Það er hins vegar ekki að ástæðulausu sem talað er um kynbundið ofbeldi og úrræði við því en samfélagsmeinið sem kvennaathvarfskonur takast á við hvern dag er einmitt ofbeldi karla gegn konum og það má ekki missa sjónar af því vandamáli.

Innlendar sem erlendar rannsóknir bera allar að sama brunni; karlar verða frekar fyrir tilviljanakenndu ofbeldi úti á götu en hættulegasti staður kvenna er inni á heimilum. Hér á landi verða á bilinu 10-20% kvenna fyrir ofbeldi af hendi maka og er þetta með því lægsta sem gerist í heiminum, þetta er þó algerlega óviðunandi ástand og verður ekki liðið fyrr en tekist hefur að útrýma kynbundnu ofbeldi. Um þessa tölfræði þarf ekki að deila.

Við tölum oft um karlamenningu annarra landa og hneykslumst á kúgun kvenna þar en gleymum því jafnframt að það er eitthvað í okkar eigin menningu sem elur af sér ofbeldi karla gegn konum. Við búum ekki við jafnrétti kynjanna og kynbundið ofbeldi er ein birtingamynd þess. Enn hafa karlar fjárhagslega yfirburði, taka ekki sama þátt í heimilisstörfum eða ábyrgð á börnum og valdastaða þeirra í samfélaginu er sterkari en kvenna. Sameinuðu þjóðirnar hafa látið baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi til sín taka og í yfirlýsingu þeirra kemur fram að ofbeldið er „vitnisburður um sögulegt valdaójafnvægi milli karla og kvenna, sem leitt hefur til yfirráða karla yfir og mismunun þeirra gegn konum“ og að „ofbeldi gegn konum er eitt helsta tæki samfélagsins til að skipa konum skör lægra en körlum“.

Barátta gegn ofbeldi inni á heimilum er þannig hluti af jafnréttisbaráttunni og verður ekki skilið þar á milli. Kynbundið ofbeldi verður til sem birtingamynd kynjamisréttis á meðan ekki ríkir jafnrétti. Við verðum því alltaf að hafa í huga að í okkar eigin menningu ríkir enn kvennakúgun. Tölfræðin segir okkur það og þær sem vinna og koma í Kvennaathvarfið eru svo sannarleg til vitnis um misréttið.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.