Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

23.12.2011 : Jólakveðjur

Kvennaathvarfið verður opið yfir hátíðirnar eins og aðra daga og veitir skjól konum og börnum þeirra sem ekki geta dvalið heima hjá sér vegna ofbeldis. Einnig er svarað er í neyðarsímann í síma 5611205 allan sólarhringinn.

Aðventan hefur verið ánægjuleg og viðburðarrík í Kvennaathvarfinu og hefur hlýhugur í garð athvarfsins og íbúa þess verið áberandi sem aldrei fyrr. Góðvinir athvarfsins hafa bankað upp á með ýmsar gjafir og sjálfboðna þjónustu og góðar gjafir hafa borist frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.

Mánudaginn 19. desember fengum við heimsókn frá Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík sem veitti Samtökum um kvennaathvarf styrk að upphæð kr. 500.000.  Rekstrarstýra Kvennaathvarfsins veitti styrknum viðtöku og mun hann nýtast vel til frekari uppbyggingar barnastarfs í athvarfinu.

Stjórn og starfskonur Kvennaathvarfsins eru þakklátar fyrir hlýhug og stuðning og senda út bestu óskir um gleðileg og friðsöm jól.

 

29.11.2011 : 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Nú stendur yfir árlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið stendur yfir frá 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum til 10. desember sem er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur . Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis.  Yfirskrift átaksins í ár er "heimilisfriður - heimsfriður".  Nánari upplýsingar um átakið og dagskrá þess er að finna á slóðinni http://www.humanrights.is/servefir/16dagar og á facebook- síðu átaksins https://www.facebook.com/pages/16-daga-%C3%A1tak-gegn-kynbundnu-ofbeldi/244578395591186
 

23.9.2011 : Skýrsla velferðarráðherra um aðgerðir samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna ofbeldis karla gegn konum í nánum samböndum

Í skýrslunni eru birtar tillögur til stjórnvalda um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum í nánum samböndum. Skýrslan er aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins á slóðinni http://www.velferdarraduneyti.is/rit-og-skyrslur-vel/nr/32741

 

31.8.2011 : Kvennaathvarfið á Facebook

Kvennaathvarfið er nú á Facebook :o)
 

31.8.2011 : Stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Stjórn Samtaka um kvennaathvarf hefur skipt með sér verkum. Steinunn Stefánsdóttir verður áfram formaður, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir varaformaður, Þórdís Eygló Sigurðardóttir gjaldkeri, Fríða Bragadóttir ritari og Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir meðstjórnandi.  Í varastjórn sitja Edda Ólafsdóttir og Birna Þórarinsdóttir.  Stjórn samtakanna fundar alla jafna á þriggja vikna fresti.
 

27.7.2011 : Tilkynning frá NEI hópnum gegn kynbundu ofbeldi

Tilkynning frá NEI
Á hverju ári leita konur og karlar til neyðarmóttöku nauðgana og Stígamóta eftir útihátíðir. Útihátíðir eiga að snúast um að skemmta sér með vinum sínum og hafa gaman. Allir eiga að geta mætt án þess að eiga í hættu að verða fyrir ofbeldi. Þess vegna vill NEI-hreyfingin ítreka að ábyrgðin er á herðum karla og skilaboðin eru einfaldlega: EKKI NAUÐGA!

Við biðjum alla um að sameinast um það markmið að útrýma nauðgunum á útihátíðum. Fylgist með því sem gerist í kringum ykkur og ef þið verðið vör við eitthvað grunsamlegt, ýmist skerist í leikinn eða látið lögreglu vita.

Komum fram við hvert annað af virðingu og munum að það eru ekki bara ógæfumenn, siðleysingjar og „skrímsli“ sem nauðga. Nauðgarar eru synir, feður, bræður, frændur og vinir. Nauðgar vinur þinn?

 

27.7.2011 : Lög um nálgunarbann og brottvikningu ofbeldismanns af heimili

Þann 5. júní 2011 samþykkti Alþingi fruvarp til laga um nálgunarbann og brottvikningu ofbeldismanns af heimili. Gefa lögin lögreglustjóra heimild til að fjarlægja ofbeldismann af heimili og meina honum að koma þangað til tiltekinn tíma.  Lögunum er ætlað að styrkja stöðu brotaþola ofbeldis á heimilum og verður áhugavert að sjá að hve miklu leyti þau standa undir þeim væntingum.
 

24.5.2011 : Áskorun Samtaka um kvennaathvarf til Alþingis samþykkt á aðalfundi samtakanna 19. maí 2011

Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf fagnar frumvarpi innanríkisráðherra til laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili og hvetur til þess að verði gert að lögum á yfirstandandi þingi.

 

Á síðasta ári leituðu 375 konur í Kvennaathvarfið vegna ofbeldis í nánum samböndum, þar af komu 118 konur til dvalar ásamt 54 börnum vegna þess að dvöl á heimilum þeirra var óbærileg vegna ofbeldis.  Ljóst er að væri frumvarpið orðið að lögum hefði hluti þessara kvenna og barna losnað við að hrekjast af heiman.

 

Samþykkt frumvarpsins myndi verulega auka lífsgæði og öryggi brotaþola ofbeldis í nánum samböndum.  Innan samtakanna hefur jafnframt ríkt sú skoðun að óþolandi er að brotaþolar þurfi að víkja af heimilum sínum en ekki þeir sem ofbeldinu beita. 

 

Aðalfundur skorar einróma á Alþingi að samþykkja frumvarpið fyrir þinglok.

 

24.5.2011 : Stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Nú stjórn Samtaka um kvennaathvarf var kosin á aðalfundi samtakanna. Stjórnina skipa nú;

Elva Dögg Ásu- og Kristinsdóttir

Fríða Bragadóttir

Steinunn Stefánsdóttir

Þórdís Eygló Sigurðardóttir

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

 

Í varastjórn sitja;

Brynja Baldursdóttir

Edda Ólafsdóttir

 

24.5.2011 : Ráðstefna um kynbundið ofbeldi haldin í Háskóla Íslands (Öskju), miðvikudaginn 1. júní kl. 13-16

Jafnréttisstofa, Velferðarráðuneytið, Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd við HÍ og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi við HA standa fyrir ráðstefnu og fræðsludegi um kynbundið ofbeldi.

Dagskrá

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra setur ráðstefnuna

Elísabet Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd : Niðurstöður rannsókna og hvað svo?

Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri: Ofbeldi, konur og mannréttindi

Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og Fangelsismálastofnun en starfar sjálfstætt við mat og meðferð ungra gerenda kynferðisbrota : Börn og unglingar sem sýna skaðlega kynhegðun

Kaffi

Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi: Konur, verkir og ofbeldi

Ástþóra Kristinsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarstjóri í Heilsugæslunni Hvammi í Kópavogi: Áhrif heimilisofbeldis á barnshafandi konur, fóstur og börn þeirra.

Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Notkun klínískra leiðbeininga við að greina ofbeldi gegn konum í nánum samböndum

 Umræður

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á: jafnretti@jafnretti.is

 

17.5.2011 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf

Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf og Sjálfseignastofnunar Kvennaathvarfsins verður haldinn í sal Félags bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21, fimmtudaginn 19. maí kl. 17 - 19.

Dagskrá verður sem hér segir;

1.      Skýrsla stjórnar

2.      Skýrsla fræðslu- og framkvæmdastýru Samtaka um kvennaathvarf

3.      Ársreikningar

4.      Fjárhagsáætlun

5.      Kosning nýrrar stjórnar Samtaka um kvennaathvarf

6.      Kosning skoðunarmanna reikninga

7.      Ákvörðun árgjalda

8.      Önnur mál

9.      Léttar veitingar og hópurinn „Skyndilega greip mig óstjórnleg löngun“ skemmtir

 

Félagar eru hvattir til að mæta.

 

28.4.2011 : Aðalfundur

Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf og sjálfseignarstofnunarinnar Kvennaathvarfið verður haldinn í sal Félags bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21, fimmtudaginn 19. apríl n.k. kl. 17:00. Fundurinn verður nánar auglýstur þegar nær dregur.
 

8.4.2011 : Styrkur úr þróunarsjóði innflytjendamála

Þróunarsjóður innflytjendamála hefur veitt Samtökum um kvennaathvarf styrk að fjárhæð 490.000 kr. Styrknum verður varið til til rannsóknar á aðtæðum erlendra kvenna sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu.  Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvað hindri erlendar konur helst í því að komast úr ofbeldissamböndum en mun hærra hlutfall erlendra kvenna en íslenskra snýr aftur til ofbeldismannsins eftir dvöl í Kvennaathvarfinu. 
 

7.4.2011 : Bókagjöf

Nýlega fékk Kvennaathvarfið að gjöf frá bókaútgáfunni Sölku háan stafla af dagatalsbókinni Konur eiga orðið allan ársins hring.  Konurnar sem nýta sér þjónustu athvarfsins njóta góðs af gjöfinni og er starfsfólki Sölku færðar bestu þakkir.
 

28.3.2011 : Talaðu við mig - námskeið um samtöl við börn

Síðastliðinn föstudag sátu starfskonur Kvennaathvarfsins námskeið um samtöl við börn og unglinga á vegum Barnaverndarstofu. Fjallar námskeiðið m.a. um það hvað einkennir gott samtal við börn í vanda og hvernig gott sé að bera sig að í samtölum við börn.  Er þátttaka í námskeiðinu eitt skref starfskvenna í þá átt að ræða markvissar við börn sem dvelja í athvarfinu. 

 

28.3.2011 : Stuðningur við börn

Þjóðleikhúsið, samtökin Barnabros og Húsdýragarðurinn hafa sýnt krökkunum í Kvennaathvarfinu hlýhug og boðið í bíó, leikhús og í Húsdýragarðinn. Það eru kátir krakkar sem koma heim eftir Ballið á Bessastöðum, eðlusýningu og bíóferðir í boði þessara aðila og eru þeim færðar bestu þakkir.
 

8.3.2011 : Góðgerðadagur Kvennaskólans

Góðgerðadagur Kvennaskólans er haldinn í dag og að því tilefni gengu nemendur í 4.NS um Laugaveginn og verslunarmiðstöðvar í dag, seldu kökur til styrktar Kvennaathvarfinu og upplýstu vegfarendur um ofbeldi. Fulltrúar þeirra komu svo færandi hendi með rúmlega 24.000 krónur sem fara í afþreyingarsjóð fyrir börnin í athvarfinu.  Einnig færðu þau athvarfinu bíómiða og miða í keilu sem munu nýtast börnunum vel.  Nemendum 4.NS eru færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn og samstarfið.
 

8.3.2011 : Gjöf frá Zontaklúbbi Reykjavíkur

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna færði Zontaklúbbur Reykjavíkur Kvennaathvarfinu 200.000 krónur að gjöf. Fénu verður varið til reksturs tveggja sjálfshjálparhópa en um þessar mundir eru starfskonur Kvennaathvarfsins að styrkja þennan mikilvæga þátt starfsins og kemur styrkurinn því að góðum notum.  Er Zontaklúbbi Reykjavíkur færðar bestu þakkir fyrir góða gjöf og fyrir hlýhug og tryggð á liðnum árum.
 

2.3.2011 : Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti - 8. mars í 100 ár

Að venju stendur fjöldi kvenna - og friðarsamtaka fyrir dagskrá í tilefni af 8. mars. Að þessu sinni er yfirskrift fundarins 8. mars í 100 ár.  Frú Vigdís Finnbogadóttir mun ávarpa samkomuna í upphafi fundar en fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.  

Dagskrá:

Elín Björg Jónsdóttir:  Þín herhvöt oft fékk ekki svar

Fatima Khua: Konur í stríði og friði

Harpa Stefánsdóttir: 8. mars í Mamadur - vídeoinnslag

Ragnheiður Gyða Jónsdóttir: Quo vadis, domina? - hvert ætlarðu kona?

Andrés Magnússon: Áhrif stríðs á manneskjuna

Katrín Oddsdóttir: Hið ofbeldisfulla afstöðuleysi

Ellen Kritsjánsdóttir syngur

Helga Tryggvadóttir: Frelsi og rétturinn til að mótmæla

María S. Gunnarsdóttir: Tímamót

 

Dagskráin verður flutt í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur, þriðjudaginn 8. mars kl. 17:00.  Aðgangur er ókeypis.

 

Að dagskránni standa Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Alþjóðlegur jafnréttisskóli við HÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Íslandsdeld Amnesty International, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjasambands Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um kvennaathvarf, SFR - stéttarfélag í almenningsþjónustu, SHA - Samtök herstöðvarandstæðinga, Sjúkraliðafélag Íslands, St.Rv. - Starfsmananfélag Reykjavíkur, Söguhringur kvenna og Þroskaþjálfafélag Íslands.

 

 

28.2.2011 : Árið 2010

Áríð 2010 voru skráðar 118 komur í dvöl í Kvennaathvarfinu og 746 í viðtöl, alls 864 komur en þær hafa aldrei í sögu athvarfsins verið fleiri á einu ári.  Þá eru ótalin viðtöl sem tekin eru við dvalarkonur en þær fá að lágmarki vikuleg viðtöl.   Margar konur koma oftar en einu sinni, einkum þær sem koma í viðtöl en í heildina leituðu 375 konur í athvarfið á árinu.   Fjórir sjálfshjálparhópar voru starfræktir á árinu.  Neyðarsími Kvennaathvarfsins er opinn allan sólarhringinn, allan ársins hring og þar er veitt ráðgjöf og stuðningur.  Þangað leita til dæmis, auk kvenna sem búa eða hafa búið við ofbeldi, karlar sem eru beittir ofbeldi, aðstandendur brotaþola og fagfólk. 

 

23.2.2011 : Áskorun Barnaheilla - Save the Children til íslenskra stjórnvalda

Samtökin Barnaheill - Save the Children á Íslandi standa nú fyrir undirskriftarsöfnun á netinu, á slóðinni þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að koma með úrræði fyrir börn sem búa við heimilisofbeldi svo þau fái þá aðstoð og þann stuðning sem þau þurfa.  Stuðningi við börn sem búa við heimilisofbeldi verulega ábótavant hér á landi og afar brýnt að koma á heildstæðri stefnu í málum þessa hóps.  Undirskiriftasöfnunina er að finna á slóðinni; http://www.barnaheill.is/verndumborn/index.html 
 

23.2.2011 : Stofnun Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi

Nýlega var sett á stofn í Háskólanum á Akureyri Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi. Markmið stöðvarinnar er að útrýma ofbeldi, einkum gegn ofbeldi börnum og ofbeldi í nánum samböndum, m.a. með samvinnu við samsvarandi stofnanir og félög og með því að standa fyrir ráðstefnum, málþingum og útgáfu til að útbreiða þekkingu á ofbeldi og afleiðingum þess.  Á heimasíðu Rannsóknarmiðstöðvar gegn ofbeldi, www.ofbeldi.is, verða meðal annars birtar rannsóknarniðurstöður og fræðsluefni um ofbeldi.
 

14.2.2011 : Heimsókn frá Aflinu á Akureyri

Í síðustu viku fengu starfskonur Kvennaathvarfsins góðar heimsóknir frá starfskonum Aflsins á Akureyri. Var gagnlegt fyrir báða aðila að skiptast á reynslu og skoðunum en Aflið heldur úti þjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldis og aðstandendur þeirra.  Heiamsíða Aflsins er www.aflidak.is
 

7.2.2011 : Fyrirlestravika hjá Drekaslóð 7. - 11. febrúar 2011

Drakaslóð, fræðslu- og þjónustumiðstöð fyrir þolendur alls kyns ofbeldis og aðstandendur þeirra býður upp á fyrirlestra um ofbeldi alla þessa viku í húsnæði Dreksslóðar að Borgartúni 3. Dagskrá vikunnar má lesa á heimasíðunni www.drekaslod.is
 

1.2.2011 : Málþing Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um börn sem búa við heimilisofbeldi 17. febrúar 2011, kl. 9:00-12:45

Markmið málþingsins er að vekja umræður um mikilvægi þess að börnum sem búa við kynbundið ofbeldi á heimilum sínum sé gefin gaumur og þau fái nauðsynlegan stuðning og aðstoð. Á málþinginu verða m.a. kynntar niðurstöður rannsóknar Barnaheilla –Save the Children á Íslandi um hvaða stuðningur er í boði fyrir börn í Reykjavík sem alast upp við kynbundið ofbeldi. 

Dagskrá:

9:00 Helgi Ágústsson formaður Barnaheilla –Save the Children á Íslandi

9:15 Myndband frá nemendum í Austurbæjarskóla.

9:20 Anni Haugen, lektor við Félagsráðgjafardeild HÍ: Það þarf kjark og fagmennsku til að horfast í augu við vonda hluti.

9:50 Myndband frá nemendum í Snælandsskóla

9:55 Guðrún Kristinsdóttir, prófessor á  Menntavísindasviði HÍ: Börn verða vitni að ofbeldi heima

10:25 Kaffihlé

10:45 Myndband frá nemendum í Austurbæjarskóla

10:50 Örnólfur Thorlacius, verkefnastjóri Barnaheilla –Save the Children á Íslandi : Átta ára drengur óskar eftir íbúð. Niðurstöður rannsóknar kynntar

11:35 Myndband frá nemendum í Snælandsskóla

11:40 Pallborðsumræður; Bragi Guðbrandsson frá Barnaverndarstofu, Einar Gylfi Jónsson frá Körlum til ábyrgðar, Ellý Alda Þorsteinsdóttir frá velferðarsviði Reykjavíkur, Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir frá Barnavernd Reykjavíkur, Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri Reykjavíkur, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir frá Skólasviði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og  Sigþrúður Guðmundsdóttir frá Kvennaathvarfinu

12:45 Málþingsslit

 

 

31.1.2011 : Rannsókn á ofbeldi gegn konum

Nýlega voru kynntar niðurstöður rannsóknar á líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi gegn konum sem Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd gerði fyrir velferðarráðuneytið í tengslum við áætlun stjórnvalda um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi.  Niðurstöður rannsóknarinnar koma fram í skýrslunni Rannsókn á ofbeldi gegn konum.  Reynsla kvenna á aldrinum 18-80 ára á Íslandi.  Skýrslan er aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins www.velferdarraduneyti.is

 

31.1.2011 : Jafnréttisþing

Jafnréttisþing verður haldið föstudaginn 4. febrúar næstkomandi að Nordica Hilton Reykjavík klukkan 9 til 16. Hlutverk þingsins er að efna til samræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis.  Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis, frekari upplýsingar er að finna á vef velferðarráðuneytisins, www.velferdarraduneyti.is
 

24.1.2011 : Öðlingurinn 2011

Nú stendur yfir átakið Öðlingurinn 2011, en það stendur frá bóndadegi fram á á konudaginn, 20. febrúar. Markmið Öðlingsins 2011 er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi. Þrjátíu karlmenn munu skrifa pistla sem fjalla um jafnréttismál frá mörgum sjónarhornum, og verða birtir daglega á Vísisvefnum og reglulega í Fréttablaðinu á meðan á átakinu stendur. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur Á mannamáli, bók um kynbundið ofbeldi, er upphafskona Öðlingsátaksin en hún kom því  af stað til að virkja ábyrga umræðu um jafnréttismál.  Með því að fá einungis karlmenn til að skrifa pistla er gerð tilraun til að rétta hlut karla í þessari umræðu og ljá þeim rödd.  Heimasíða átaksins er odlingurinn.is
 

6.1.2011 : Réttindi þín - bæklingur með upplýsingum fyrir erlendar konur á Íslandi

Jafnréttisstofa hefur gefið út bækling um mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi. Bæklingurinn ber nafnið Réttur þinn og er gefinn út á íslensku, ensku, pólsku, spænsku, taílensku, rússnesku og arabísku. Í honum má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi íslenskt samfélag og réttarkerfi. Upplýsingar um jafnrétti kynjanna, dvalarleyfi, hjónabönd, skilnað, forsjármál, umgengnismál, fjármál, ofbeldi í nánum samböndum og hótanir. Þar má einnig finna vísanir í frekari upplýsingar um aðstoð, svo sem símanúmer, heimilisföng og heimasíður ýmissa stofnanna og félagasamtaka. Hægt að nálgast bæklinginn rafrænt á heimasíðu Jafnréttisstofu (www.jafnrétti.is) , einnig er hægt panta prentuð eintök hjá Jafnréttisstofu í síma 4606200 eða netfangið jafnretti@jafnretti.is.
 

6.1.2011 : Nýárskveðjur

Stjórn og starfskonur Samtaka um kvennaathvarf senda konunum sem heimsótt hafa Kvennaathvarfið sem og öðrum velunnurum bestu nýárskveðjur. Í aðdraganda hátíðanna fundum við enn og aftur fyrir velvilja fyrirtækja og einstaklinga í garð athvarfsins og íbúa þess. Fyrir það er þakkað.
 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.