25.6.2010
:
Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf 2009
Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2009 er komið á vefinn (undir liðnum Útgáfa).
18.6.2010
:
19. júní í Ráðhúsi Reykjavíkur
Hátíðarhöld á kvenréttindadeginum 19. júní verða í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkurborgar og hefjast kl. 16.00.
Dagskrá
-Margrét K. Sverrisdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, setur hátíðina
-Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, kynnir kvennafrídaginn 24. október og Skotturnar regnhlífarsamtök kvennahreyfingarinnar
-Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari kvennafrídagsins 2010, ávarpar fundargesti
-Kristín Þóra Harðardóttir tilkynnir styrkveitingar frá Menningar- og minningasjóði kvenna
-Kynning á 19. júní, blaði Kvenréttindafélags Íslands og Húsfreyjunni
-Margrét Rögnvaldsdóttir kynnir úrslit hönnunarsamkeppni Skottanna og Hönnunarmiðstöðvar Íslands á barmmerki kvennafrídagsins
-Áfram stelpur hópurinn syngur baráttusöngva. Söngur: Brynhildur Björnsdóttir, Eline McKay, Margrét Pétursdóttir og Esther Jökulsdóttir. Píanóleikur: Arnhildur Valgarðsdóttir
-Léttar veitingar
31.5.2010
:
Mikið aðsókn í Kvennaathvarfið
Mikið annríki hefur verið í Kvennaathvarfinu það sem af er árs. Hér hafa dvalið 60 konur í lengri eða skemmri tíma og að auki hafa verið tekin um 340 viðtöl við rúmlega 100 konur. Er þetta meiri aðsókn en fyrstu mánuði undanfarinna ára. Einnig eru sjálfshjálparhópar farnir af stað aftur eftir stutt hlé og stefna starfskonur að því að hópastarf verði vaxandi þáttur í starfseminni eftir því sem líður á árið. Sími Kvennaathvarfsins er opinn allan sólarhringinn.
25.5.2010
:
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf var haldinn á Kaffi Sólon 21. maí s.l. Í stjórn samtakanna sitja nú Steinunn Stefánsdóttir, Þórdís Guðmundsdóttir, Þórdís Eygló Sigurðardóttir, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Tatjana Latinovic. Í varastjórn sitja Fríða Bragadóttir og Elva Dögg Ásu og Kristinsdóttir. Að afloknum venjulegum aðalfundarstörfum héldu Hildur Guðmundsdóttir, Elva Dögg Ásu og Kristinsdóttir og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir stutt erindi um ofbeldi í nánum samböndum frá ýmsum sjónarhornum.
10.5.2010
:
Tilnefningar í stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf þann 21. maí verða fimm félagsmenn kosnir í stjórn samtakanna, þrír í aðalstjórn og tveir í varastjórn. Upptillinganefnd gerir tillögu um Steinunni Sigurðardóttur, Þórdísi Eygló Sigurðardóttur og Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur í aðalstjórn og Elvu Dögg Ásu og Kristinsdóttur og Fríðu Bragadóttur í varastjórn. Sjálfkjörnar í aðalstjórn verða Tatjana Lationvic og Þórdís Guðmundsdóttur. Framboðum til stjórnar skal skila á skrifstofu samtakanna (pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða í netfangið
thorlaug@kvennaathvarf.is) og skulu þau berast í síðasta lagi föstudaginn 14. maí n.k.
4.5.2010
:
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn á efri hæð veitingastaðarins Sólons við Bankastræti, föstudaginn 21. maí kl. 17:00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum munu Elva Dögg Ásu og Kristinsdóttur MA nemi í lögfræði við HR, Hildur Guðmundsdóttir starfskona Kvennaathvarfsins og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar Á mannamáli flytja stutt erindi úr baráttunni.
8.3.2010
:
Styrkur frá Zontaklúbbi Reykjavíkur
Í dag fengum við góða heimsókn frá Zontaklúbbi Reykjavíkur sem styrkti Kvennaathvarfið um 200.000 krónur. Ljóst er að styrkurinn mun nýtast vel og eru Zontakonum færðar bestu þakkir fyrir hlýhug og rausnarskap.
8.3.2010
:
Dagskrá í Ráðhúsi Reykjavík á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars
Yfirskrift fundarins er Við getum betur og hefst hann kl. 17. Flutt verða fjölbreytileg erindi og Kvennakór við Háskólan Íslands syngur. Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.
Eftirtaldir aðilar standa að dagskránni;
Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, BHM, BSRB, Félag ísl. hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Íslandsdeild Amnesty International, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um Kvennaathvarf, SHA - Samtök hernaðarandstæðinga, Sjúkraliðafélag Íslands, ST.Rv – Starfsmannafélag Reykjavíkur, Þroskaþjálfafélag Íslands.
3.2.2010
:
Öðlingurinn 2010
Öðlingurinn er átak gegn kynbundu ofbeldi og hófst það á bóndadaginn og stendur fram á konudag. Valinn hópur karlmanna leggur átakinu lið með því að hveta til sölu bókarinnar Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur. Markmiðið með átakinu er aukin fræðsla um kynbundið ofbeldi sem og að afla fjár fyrir Neyðarmóttöku vegna nauðgana . Við bendum á heimasíðu Öðlingsins
www.odlingurinn.is fyrir þá sem vilja fræðast meira eða leggja málefninu lið.