Fréttir
I don´t know how I ended up here with this man
Nýlega kynnti Hildur Guðmundsdóttir starfskona Kvennaathvarfsins skýrslu um rannsókn sem hún vann á aðstæðum og upplifun kvenna af erlendum uppruna sem leita í Kvennaathvarfið. Á meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós var að íslensk lög verndar konur misvel fyrir ofbeldi eftir uppruna þeirra, staða kvenna sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og eru giftar ofbeldismönnum eru sérstaklega erfiðar þar sem þær eru gjarnan háðar ofbeldismanninum um dvalarleyfi. Skýrla Hildar er aðgengileg hér á síðunni undir Útgefið efni / Skýrslur.
