Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

18.12.2009 : Þingsályktunartillaga um stofnun starfshóps um ofbeldi maka gegn konum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins

Meirihluti þingmanna Alþingis stendur nú að þingsályktunartillögu um skipun starfshóps um ofbeldi maka gegn konum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Starfshópurinn skal skila fullmótuðum tillögum um úrbætur og hugsanlegar laga- og reglugerðarbreytingar. Markmiðið með úrbótunum er að bæta réttarstöðu þeirra kvenna sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og eru háðar ofbeldisfullum mökum um landvist hér á land.  Hópurinn skal skipaður einum fulltrúa dómsmála- og mannréttindaráðherra, einum fulltrúa félags- og tryggingamálaráðherra, einum fulltrúa tilnefndum af Samtökum um Kvennaathvarf og einum fulltrúa tilnefndum af Útlendingastofnun.  

 

18.12.2009 : I don´t know how I ended up here with this man

Nýlega kynnti Hildur Guðmundsdóttir starfskona Kvennaathvarfsins skýrslu um rannsókn sem hún vann á aðstæðum og upplifun kvenna af erlendum uppruna sem leita í Kvennaathvarfið. Á meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós var að íslensk lög verndar konur misvel fyrir ofbeldi eftir uppruna þeirra, staða kvenna sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins og eru giftar ofbeldismönnum eru sérstaklega erfiðar þar sem þær eru gjarnan háðar ofbeldismanninum um dvalarleyfi.  Skýrla Hildar er aðgengileg hér á síðunni undir Útgefið efni / Skýrslur.
 

8.12.2009 : Kynbundið ofbeldi, vanræksla og ill meðferð

Á vorönn 2010 býður Símenntun Háskólans á Akureyri upp á 10 eininga námskeið á meistarastigi um kynbundið ofbeldi, vanrækslu og illa meðferð. Allar upplýsingar er að finna á vefsíðu Háskólans á Akureyri, á slóðinni http://unak.is/skrar/File/Simenntun/Ofb%20Namslys(1).pdf
 

1.12.2009 : Hádegisfundur Samtaka um kvennaathvarf, miðvikudaginn 2. desember kl. 12-13

Í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi bjóða Samtök um kvennaathvarf til hádegisfundar í Þjóðmenningarhúsi, miðvikudaginn 2. desember kl. 12-13. Á fundinum kynnir Hildur Guðmundsdóttir starfskona Kvennaathvarfsins og mannfræðingur niðurstöður rannsóknar sinnar "I don´t know how I ended up here with this man" . Rannsóknin sem var unnin sumarið 2009  fjallar um aðstæður og upplifun erlendra kvenna sem leituðu í Kvennaathvarfið á árunum 2007-2009.  Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.
 

29.9.2009 : Bókin Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur

Nýlega kom út bókin Á mannamáli sem varpar ljósi á kynbundið ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi á Íslandi.   Í bókinni fjallar höfundirinn,  Þórdís Elva Þorvaldsdóttir um afbrotin, umræðuna, dómskerfið og staðreyndirnar – á hátt sem allir skilja. Í bókinni eru sögur af sigrum og ósigrum, þar er vitnað til á sjöunda tug núlifandi Íslendinga; til dómara, hjúkrunarfræðinga, barna, þingmanna, lögfræðinga, sálfræðinga, kennara, brotaþola og blaðamanna en í samhljómi þeirra kristallast skýrt: Við verðum að gera betur.

 

Þórdís Elva safnar saman gífurlegu magni upplýsinga og veltir við hverjum steini í leit að leiðum, von og framtíðarsýn. Bókin hennar Á mannamáli er mikilvægt lóð á vogarskálarnar og sönnun þess að við getum breytt umræðunni, lögunum og bætt hlutskipti brotaþola á Íslandi. Þórdís Elva hefur vakið athygli fyrir leikrit sín þar sem hún tekur á erfiðustu málefnum einkalífsins af hugrekki. Í bók sinni fer hún langt út fyrir þann ramma með fræðilegri og einstaklega persónulegri umfjöllun um mál sem brennur á þjóðinni.

 

VIð fögnum útkomu bókarinnar og óskum Þórdísi Elvu til hamingju með vel unnið verk. 

 

28.9.2009 : Fréttir úr Athvarfinu

Heldur færri konur hafa komið til dvalar í Kvennaathvarfinu í ár en á sama tíma í fyrra. Viðtalsþjónustan og neyðarsíminn eru vel nýtt og fleiri viðtöl eru tekin en árin á undan.  Konur af erlendum uppruna hafa verið rétt um helmingur dvalarkvenna undanfarin ár en þeim hefur fækkað mjög síðan um bankahrun sem vekur upp áhyggjur af aðstæðum þessa hóps í versnandi árferði enda bendir ekkert til þess að dregið hafi úr ofbeldi gegn konum.  Það vakti athygli og áhyggjur að hlutfall kvenna sem fór úr Athvarfinu og aftur heim í óbreyttar aðstæður hækkaði til muna frá 1 október í fyrra en það hlutfall er aftur að færast til fyrri vegar. 
 

20.5.2009 : .

 

20.5.2009 : Drög að skipulagsskrá fyrir sjálfseignarstofnunina Kvennaathvarfið

Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf sem haldinn var á Lækjarbrekku 8. maí s.l. vöru lögð fyrir drög að skipulagsskrá fyrir sjálfseignarstofnunina Kvennaathvarfið. Nokkrar athugasemdir voru gerðar við drögin og samþykkti fundurinn að innan sex vikna skyldi haldinn aukaaðalfundur og málið afgreitt þar. Ný drög að skipulagsskrá munu birtast hér á vefnum innan skamms.

 

18.5.2009 : Ársskýrsla Kvennaathvarfsins 2008

Ársskýrslu Kvennaathvarfsins fyrir árið 2008 er komin út.   Mikil aðsókn einkenndi starfið á árinu, dvalarkonum fjölgaði úr 101 í 130 á milli ára, börnum í dvöl fjölgaði einnig svo og konum sem komu í viðtöl án þess að koma til dvalar.  Meðaldvöl kvenna lengdist um einn dag á milli ára.  Rúmlega helmingur kvennanna var að flýja eiginmann eða sambýlismann en tæplega þriðjungur ofbeldismannanna voru fyrrverandi eigin- eða sambýlismenn.  Ofbeldismennirnir voru á aldrinum 19 til 80 ára, meðalaldur þeirra var 41 ár.  Skýrsluna má skoða hér á síðunni undir liðnum Útgefið efni en einnig má panta hana í pappírsformi í netfanginu sigthrudur@kvennaathvarf.is
 

8.5.2009 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf í dag sem og frumsýning heimildamyndarinnar Athvarfið.

Minnt er á áður auglýstan aðalfund Samtaka um kvennaathvarf sem haldinn verður á Lækjarbrekku kl. 17 í dag. Í lok fundar verður frumsýning myndarinnar Athvarfið sem er heimildarmynd Kristínar Tómasdóttur og Garðars Stefánssonar um Kvennaathvarfið.
 

28.4.2009 :

 
 

28.4.2009 : Málstofur Barnaverndarstofu um ofbeldi í nánum samböndum

Barnaverndarstofa hefur undanfarið staðið fyrir mánaðarlegum málstofum um ofbeldi í nánum samböndum og hvernig það snýr að börnum.  Á málstofunum  töluðu m.a. framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf um áhrif heimilisofbeldis á börn, Ingólfur V. Gíslason um ofbeldi í nánum samböndum og Eyrún Jónsdóttir og Margrét Blöndal um komur barna á slysa- og bráðadeild Landspítalans.   Upptökur af málstofunum má sjá á heimasíðu Barnaverndarstofu www.bvs.is
 

28.4.2009 : Tillögur uppstillingarnefndar að stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Lög Samtaka um kvennaathvarf gera ráð fyrir því að ár hvert sé skipuð uppstillinganefnd sem skuli tryggja næg framboð til stjórnarkjörs. Uppstillinganefnd hefur nú lokið störfum og leggur hún til að sama stjorn og varastjórn sitji áfram.  Berist fleiri framboð til stjórnarsetu verður kosið um frambjóðendur.  Áhugasamar um setu í stjórn eru hvattar til að tilkynna framboð sitt til Elísabetar Hjaltadóttur fulltrúa í uppstillingarnefnd (elisabet_hjalta@hotmail.com) eða Sigþrúðar Guðmundsdóttur framkvæmdastýru samtakanna (sigthrudur@kvennaathvarf.is).  Framboð skulu berast í síðasta lagi föstudaginn 2. maí.
 

21.4.2009 : Leitað að áhugasömum í stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Áhugasömum félagsmönnum um setu í stjórn Samtaka um kvennaathvarf er bent á að framboð þarf að berast skrifstofu samtakanna eigi síðar en viku fyrir aðalfund, tillögum má skila til framkvæmdastýru samtakanna í netfang sigthrudur@kvennaathvarf.is eða til Elísabetar Hjaltadóttur fulltrúa í uppstillinganefnd í netfangið elisabet_hjalta@hotmail.com. Einnig má senda tillögur á skrifstofu samtakanna í pósthólf 1486, 121 Reykajvík.  Tillögur uppstillinganefndar munu liggja frammi á skrifstofu samtakanna tveimur vikum fyrir aðalfund sbr. lögum Samtaka um kvennaathvarf.
 

21.4.2009 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf

Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn í Kornhlöðunni á Lækjarbrekku föstudaginn 8. maí n.k. kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem að loknum fundi verður frumsýnd kvikmyndin Athvarfið sem er fræðslumynd um Kvennaathvarfið gerð af Kristínu Tómasdóttur og Garðari Stefánssyni.
 

21.4.2009 : Bann við kaupum á vændi

Samtök um kvennaathvarf fagna nýsamþykktum lögum um bann við kaupum á vændi og telja að þar með sé mikilvægt baráttumál í höfn. Með þessu feta íslensk stjórnvöld í slóð Svía sem gerðu kaup á vændi refsiverð árið 1999 og Norðmanna en norsku lögin um bann við kaupum á vændi tóku gildi um áramótin.
 

27.3.2009 : Góð gjöf frá Zontaklúbbnum Emblu

Félagar í Zontaklúbbnum Embla hafa enn einu sinni sýnt í verki hlýhug sinn í garð Kvennaathvarfsins en í vikunni komu stjórnarkonur klúbbsins færandi hendi með 100.000 króna styrk til túlkaþjónustu athvarfsins. Styrkurinn mun nýtast vel, eins og undanfarin ár, í viðtölum við dvalarkonur auk þess sem hann gerir það að verkum að hægt er að bjóða erlendum konum túlkuð viðtöl án þess að til dvalar komi. Stjórn og starfskonur Kvennaathvarfsins kunna Emblum bestu þakkir fyrir góða gjöf og hlýhug í garð athvarfsins.
 

20.3.2009 : Fögur fyrirheit; Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna í 30 ár

Þann 27. mars verður haldið málþing í tilefni þess að 30 ár eru nú liðin frá því að Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tók gildi. Málþingið ber yfirskriftina Fögur fyrirheit og verður haldið í Gyllta salnum á Hótel Borg kl. 14-16. Allir eru velkomnir, enginn aðgangseyrir og kaffi á boðstólnum.

Dagskrá

Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu

Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Sátt um samfélagsbreytingar

Brynhildur Flóvenz, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands

Eru konur ekki menn?  Mikilvægi sértækra mannréttindasamninga á borð við Kvennasáttmálann

Guðrún Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

Skuggaskýrslur; Aðhaldshlutverk frjálsra félagasamtaka

Rachael Lorne Johnstone, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands

Going private; State responsibility for domestic violence under the CEDAW

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi

Hvers vegna þarf kvennasáttmála?  UNIFEM í myndum.

Fundarstjóri: Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri alþjóða- og öryggissviðs í utanríkisráðuneytinu.

 

Að málþinginu standa: Feminstafélag Íslands, Jafnréttisráð, Jafnréttisstofa, Kvennaathvarfið, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Stígamót og UNIFEM á Íslandi.

 

 

 

19.3.2009 : Aðgerðaráætlun gegn mansali samþykkt á Alþingi

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt aðgerðaráætlun gegn mansali sem felur í sér langþráðan áfanga í baráttunni gegn masali hér á landi. Í aðgerðaráætluninni er stefnt að því að fullgilda alþjóðlega samninga um mansal og alþjóðlega glæpastarfsemi sem íslensk stjórnvöld hafa undirritað auk þess sem tryggja á fórnarlömbum mansals aukna aðstoð, öruggt skjól, heilbrigðisþjónustu og vernd.  Lagt verður fram frumvarp sem tryggir fórnarlömbum mansals tímabundið dvalarleyfi sem umþóttunartíma og á þeim tíma öruggt skjól og félagslega og fjárhagslega aðstoð.  Einnig stendur til að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert og að afnema undanþágumöguleika í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald á þann hátt að starfsemi nektarstaða verði alfarið bönnuð.  Aðgerðaráætlunina má lesa í heild sinni, ásamt greinargerð á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins  (felagsmalaraduneyti.is).
 

19.3.2009 : Fræðslurit um ofbeldi í nánum samböndum

Í samræmi við aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu ofbeldi frá 2006 hefur félags- og tryggingamálaráðuneytið gefið út fræðslurit um ofbeldi í nánum samböndum eftir Ingólf V. Gíslason. Ritin sem unnin voru á vegum nefndar um aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum eru fimm talsins. Eitt þeirra fjallar á almennan hátt um ofbeldi gegn konum í nánum samböndum, rannsóknarniðurstöður, birtingarmyndir ofbeldis og afleiðingar þess.  Hin ritin eru tileinkuð tilteknum starfsstéttum, innihalda almennan kafla um ofbeldi í nánum samböndum auk efnis fyrir starfsfólk félagsþjónustu, heilbrigðisstéttir, ljósmæður og lögreglu.  Ritin eru birt í heild sinni á heimasíðu félags- og tryggingamálaráðuneytis (www.felagsmalaraduneyti.is)
 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.