Fréttir
Frestun jafnréttisþings fram í janúar
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um að ákveðið hafi verið að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi, sem halda átti skv. 10. gr. nýrra jafnréttislaga hinn 7. nóvember næstkomandi, fram í janúar á næsta ári. Ástæðan er að þinginu er ætlað að höfða til stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum, stjórnmálamanna, fulltrúa frjálsra félagasamtaka og almennings. Ráðuneytinu þykir líkur benda til að jafnréttisþingið nái ekki markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru núna bundnir dag og nótt við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast fjármálakreppunni.
