Fréttir
Fræðslufundur um ofbeldi gegn konum og börnum
Fimmtudaginn 23. október n.k. stendur Höndin fyrir opnum fræðslufundi um ofbeldi gegn konum og börnum. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík og hefst hann kl. 20:00. Frummælendur verða Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, Sigríður Björnsdóttir annar stofnandi samtakanna Blátt áfram og Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta. Fundarstjóri verður Ólafía Ragnarsdóttir.
