Fréttir
Styrkur úr Pokasjóði
Kvennaathvarfið hefur fengið 500.000 króna styrk úr Pokasjóði til uppbyggingar barnastarfs. Kemur þessi styrkur í afar góðar þarfir, ekki síst núna þegar mörg börn dvelja í athvarfinu á hverjum degi. Samtök um kvennaathvarf þakka Pokasjóði fyrir að styrkja þetta verðuga verkefni.
