Fréttir
Fyrirhuguð breyting á norskum lögum um vændi
Nú stefnir í að norsk stjórnvöld geri kaup á vændi refsiverð að viðlögðum sektum og allt að hálfs árs fangelsi en lagafrumvarp þess eðlis hefur meirihluta fylgis í Stórþinginu. Með þessu hyggst norska þingið feta í slóð Svía sem gerðu kaup á vændi refsiverð árið 1999. Árið 2004 kom út skýrsla á vegum sænska landlæknisembættisins um áhrif breyttrar vændislöggjafar í Svíþjóð en þar kemur fram að síðan lögunum var breytt hefur götuvændi minnkað sem og nýliðun í röðun vændiskvenna. Þróuð hafa verið úrræði fyrir konur í vændi og kaupendur vændis og fræðsla og forvarnir samfara lagabreytingum þykja hafa gefið góða raun. Hér á landi er vændi liggur hvorki refsing við kaupum né sölu á vændi en samkvæmt niðurstöðun könnunar Capacent Gallup frá því á síðasta ári eru 70% landsmanna hlynnt því að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Talsverður munur er á afstöðu kynjanna en tæp 83% kvenna sögðust hlynnt því að kaup á vændi verði gerð refsiverð en 57% karla.
