Fréttir
Aðalfundur og stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Stjórn Samtaka um kvennaathvarf var kjörin á aðalfundi samtakanna 10. apríl síðastliðinn. Í stjórinni sitja Hanna Rún Sverrisdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Tatjana Latinovich, Þórdís Guðmundsdóttir og Þórdís Eygló Sigurðardóttir. Í varastjórn sitja Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og Urður Gunnarsdóttir. Á fundinum áttu sér stað gagnlegar umræður og er ánægjulegt að skynja áhuga félagskvenna á starfsemi samtakanna.
