Fréttir
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn í Kornhlöðunni fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00.
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00.
Dagskrá aðalfundarins verður sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrsla fræðslu- og framkvæmdastýru
3. Ársreikningur
4. Fjárhagsáætlun
5. Tillaga að árgjaldi fyrir næsta ár
6. Kosið til nýrrar stjórnar
7. Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnarkjör
Uppstillinganefnd hefur skilað tillögum og liggja þær frammi á skrfistofu Kvennaathvarfsins skv. lögum samtakanna en félagsmenn skulu skila tillögum sínum á skrifstofu a.m.k. viku fyrir fund. Lög samtaka um kvennaathvarf má nálgast hér á síðunni í kaflanum Kvennaathvarf/Stjórn.
