Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

23.12.2008 : Gleðileg jól

Í aðdraganda jóla hafa fjölmargir einstaklingar, félagasamtök og stofnanir sýnt Kvennaathvarfinu og íbúum þess hlýhug og hingað hafa streymt vel þegnar gjafir og styrkir sem aldrei fyrr. Þessum aðilum eru færðar innilegar þakkir og góðar kveðjur.

Kvennaathvarfið er sem fyrr opið allan sólarhringinn.

Starfskonur og stjórn Kvennaathvarfsins óska öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Sérstakar kveðjur fá þær fjölmörgu konur sem leitað hafa til Kvennaathvarfsins á liðnum árum, þeim óskum við gæfu, styrks og velfarnaðar á nýju ári.  

 

26.11.2008 :

 

26.11.2008 : Dansaðu við mig - til styrktar UNIFEM

Fimmtudaginn 27. nóvember verður haldin gala sýning í Iðnó til styrktar UNIFEM á Íslandi (Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna) á nýja íslenska leikverkinu Dansaðu við mig, eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann í uppfærslu Leikhúss andanna. Miðaverð er 3.200 kr. og renna 1.000 kr. af hverjum seldum miða til samtakanna. Innifalinn í verðinu er appelsínugulur kokkteill, en það er litur UNIFEM á Íslandi. Ragnheiður Gröndal mun stíga á stokk áður en sýningin hefst og flytja lag. Gestir eru hvattir til að sýna lit og skreyta sig með einhverju appelsínugulu. Tónlistin úr Dansaðu við mig er frumsamin íslensk nýsköpun úr smiðju tónlistarkonunnar Jarþrúðar Karlsdóttur, en 500 krónur af hverjum disk sem selst þetta kvöld mun einnig renna til UNIFEM. Kokkteillinn hefst 19:30 og sýningin sjálf kl. 20:00.
 

24.11.2008 : Í heyranda hljóði - Dagskrá Jafnréttisstofu og RIKK

Í heyranda hljóði er opinn fundur með sérfræðingum sem vinna gegn kynbundnu ofbeldi. Hér er ekki um málþing að ræða heldur munu sérfræðingarnir sitja fyrir svörum. Fundurinn fer því fram í nokkurskonar samtali sérfræðinga og fundargesta. Þetta er gert að erlendri fyrirmynd en á ensku er þetta fyrirkomulag kallað hearing sem hefur verið talin öflug leið til þess að fá fram staðreyndir og varpa ljósi á stöðu mála. Fundurinn er hluti af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og er haldinn á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum.   

Pallborð með fulltrúum félagasamtaka:

Andrés Ragnarsson annar sálfræðingur verkefnisins Karlar til Ábyrgðar

Eyrún Jónsdóttir verkefnisstjóri Neyðarmóttöku, slysa- og bráðadeild LSH

Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta

Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf

Kaffi

Pallborð með fulltrúum ríkisins:

Björgvin Björgvinsson yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Hrefna Friðriksdóttir lögfræðingur Barnaverndarstofu

Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu

Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Dóms- og kirkjumálaráðuneytis

Fundarstjóri: Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum

Samantekt: Hugrún R. Hjaltadóttir, frá Jafnréttisstofu

Á fundinum verða einnig undirbúnir spyrjendur:

Arnar Gíslason, Jafnréttisfulltrúi HÍ og meðlimur karlahópi Femínistafélags Íslands

Brynhildur Flóvenz, lektor við lagadeild H.Í.

Hrund Gunnsteinsdóttir, ráðgjafi

 

20.11.2008 : Kvenréttindafélag Íslands stendur fyrir fagnaði fyrir utan norska sendiráðið

Kvenréttindafélag Íslands efnir til fagnaðar fyrir utan norska sendiráðið við Fjólugötu 17 í Reykjavík, föstudaginn 21. nóvember nk. kl. 12:10.

Tilefnið er að fagna nýsamþykktum lögum á norska þinginu um bann við kaupum á kynlífsþjónustu, en Noregur er annað ríkið í heiminum sem gerir slík kaup refsiverð. Það voru Svíar sem fyrstir voru til að setja slík lög árið 1999.

Þetta er samnorrænn viðburður. Auk norskra kvennasamtaka, sem fagna nýju lögunum fyrir utan norska þingið á fimmtudagskvöldið, munu Danir og Svíar einnig fagna fyrir utan norsku sendiráðin í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi á föstudag.

 

Fögnum með Norðmönnum og hvetjum um leið íslensk stjórnvöld til að skoða afstöðu sína til sölu og kaupa á kynlífi!

 

21.10.2008 : Frestun jafnréttisþings fram í janúar

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um að ákveðið hafi verið að fresta fyrirhuguðu jafnréttisþingi, sem halda átti skv. 10. gr. nýrra jafnréttislaga hinn 7. nóvember næstkomandi, fram í janúar á næsta ári. Ástæðan er að þinginu er ætlað að höfða til stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum, stjórnmálamanna, fulltrúa frjálsra félagasamtaka og almennings. Ráðuneytinu þykir líkur benda til að jafnréttisþingið nái ekki markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vill virkja þar til umræðu eru núna bundnir dag og nótt við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast fjármálakreppunni.
 

20.10.2008 : Fræðslufundur um ofbeldi gegn konum og börnum

Fimmtudaginn 23. október n.k. stendur Höndin fyrir opnum fræðslufundi um ofbeldi gegn konum og börnum. Fundurinn verður haldinn í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík og hefst hann kl. 20:00.  Frummælendur verða Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf, Sigríður Björnsdóttir annar stofnandi samtakanna Blátt áfram og Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta.  Fundarstjóri verður Ólafía Ragnarsdóttir.
 

4.9.2008 : Úr Athvarfinu

Undanfarna mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir í Kvennaathvarfinu. Sett hefur verið upp nýtt baðherbergi og þvottahús og nýtt og stærra eldhús. Í framhaldinu verður svefnherbergjum fjölgað um eitt, gömlu svefnherbergin lagfærð og allir gluggar endurnýjaðir. Miða þessar framkvæmdir að því að bæta aðstöðu dvalarkvenna. Mikil aðsókn hefur verið í Kvennaathvarfið á þessu ári. Það sem af er árs hafa 95 konur komið til dvalar sem er talsverð fjölgun frá fyrri árum. Engin augljós skýring er á aukinni aðsókn en við vonum að hún skýrist fyrst og fremst af því að konur viti frekar af þessu úrræði og leiti sér aðstoðar fyrr en áður. Ekki er endilega ástæða til að ætla að aukin aðsókn stafi að auknu kynbundnu ofbeldi í samfélaginu.

 

1.7.2008 : Ársskýrsla Samtaka um kvennaathvarfr 2007 er komín á vefinn

Skýrsluna er að finna undir liðnum Útgáfa hér til hliðar. Hana er einnig hægt að panta í pappírsformi í síma 5613740 / 5613720 eða með því að senda póst í netfangið sigthrudur@kvennaathvarf.is.  Í skýrslunni er að finna tölfræðiupplýsingar út athvarfinu en að auki ýmsar upplýsingar um starfsemi Kvennaathvarfsins og almennt um ofbeldi í nánum samböndum.
 

4.6.2008 : Styrkur úr Pokasjóði

Kvennaathvarfið hefur fengið 500.000 króna styrk úr Pokasjóði til uppbyggingar barnastarfs. Kemur þessi styrkur í afar góðar þarfir, ekki síst núna þegar mörg börn dvelja í athvarfinu á hverjum degi.  Samtök um kvennaathvarf þakka Pokasjóði fyrir að styrkja þetta verðuga verkefni.
 

2.6.2008 : Barnavagn óskast

Undanfarið höfum við tekið við mörgum konum með ung börn. Sumar þeirra eru frekar illa staddar og eiga ekki barnavagn þegar þær koma til okkar. Því myndum við gjarnan þiggja barnavagn(a) í góðu ástandi og  systkinasæti ef einhver hefði hug á að losa sig við slíkt. Endilega hafið samband í síma 5611205 ef þið getið orðið að liði.
 

9.5.2008 : Fyrirhuguð breyting á norskum lögum um vændi

Nú stefnir í að norsk stjórnvöld geri kaup á vændi refsiverð að viðlögðum sektum og allt að hálfs árs fangelsi en lagafrumvarp þess eðlis hefur meirihluta fylgis í Stórþinginu. Með þessu hyggst norska þingið feta í slóð Svía sem gerðu kaup á vændi refsiverð árið 1999. Árið 2004 kom út skýrsla á vegum sænska landlæknisembættisins um áhrif breyttrar vændislöggjafar í Svíþjóð en þar kemur fram að síðan lögunum var breytt hefur götuvændi minnkað sem og nýliðun í röðun vændiskvenna. Þróuð hafa verið úrræði fyrir konur í vændi og kaupendur vændis og fræðsla og forvarnir samfara lagabreytingum þykja hafa gefið góða raun. Hér á landi er vændi liggur hvorki refsing við kaupum né sölu á vændi en samkvæmt niðurstöðun könnunar Capacent Gallup frá því á síðasta ári eru 70% landsmanna hlynnt því að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Talsverður munur er á afstöðu kynjanna en tæp 83% kvenna sögðust hlynnt því að kaup á vændi verði gerð refsiverð en 57% karla.

 

9.5.2008 : Aðalfundur og stjórn Samtaka um kvennaathvarf

Stjórn Samtaka um kvennaathvarf var kjörin á aðalfundi samtakanna 10. apríl síðastliðinn. Í stjórinni sitja Hanna Rún Sverrisdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Tatjana Latinovich, Þórdís Guðmundsdóttir og Þórdís Eygló Sigurðardóttir.  Í varastjórn sitja Guðrún Herborg Hergeirsdóttir og Urður Gunnarsdóttir.  Á fundinum áttu sér stað gagnlegar umræður og er ánægjulegt að skynja áhuga félagskvenna á starfsemi samtakanna.
 

31.3.2008 : Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf

Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00.

Dagskrá aðalfundarins verður sem hér segir:

1. Skýrsla stjórnar

2. Skýrsla fræðslu- og framkvæmdastýru

3. Ársreikningur

4. Fjárhagsáætlun

5. Tillaga að árgjaldi fyrir næsta ár

6. Kosið til nýrrar stjórnar

7. Önnur mál

 

Félagsmenn eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.

 

Stjórnarkjör

Uppstillinganefnd hefur skilað tillögum og liggja þær frammi á skrfistofu Kvennaathvarfsins skv. lögum samtakanna en félagsmenn skulu skila tillögum sínum á skrifstofu a.m.k. viku fyrir fund. Lög samtaka um kvennaathvarf má nálgast hér á síðunni í kaflanum Kvennaathvarf/Stjórn.

 

 

 

3.3.2008 : 8. mars - Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

Dagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 8. mars kl. 14:00.

Þáttur verkalýðshreyfingar í menningu - Birna Ólafsdóttir sjúkraliði

Leita að hamingju - Petra Deluxsana stjórnarkona í W.O.M.E.N.

Fljúgandi teppið - Kristín Vilhjálmsdóttir kennari

Tónlistaratriði - Guðrún Lára Pálmadóttir trúbador

Bríetarbrekka - Ólöf Nordal myndlistarmaður

Friður á heimili - sjónarhóll barna - Guðrún Kristinsdóttir prófessor við KHÍ

Friðaruppeldi - María S. Gunnarsdóttir formaður MÍKV

Brot úr leikritinu mammamamma - Opið út, leikstjóri Charlotte Böving

Konur heims, skyggnumyndasýning - Harpa Stefánsdóttir

Föndurhorn friðarsinna - vinabönd og friðarsvanir

....

Að fundinum standa MFÍK, BHM. BSRB, Félags ísl. hjúkrunarfræðinga, KÍ, Kvenfélagasamband Ísl., Kvennahreyfing OBÍ, KRFÍ, Mannréttindaskrifstofa Ísl., Samtök hernaðarandstæðinga, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um kvennaathvarf, SFR- Stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Ísl., Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Þroskaþjálfafélag Ísl.

....

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.