Fréttir
Ljósmyndasýningin Kraftakonur
Í tilefni af 25 ára afmæli Kvennaathvarfsins 6. desember n.k. verður haldin sigurhátið í Ráðhúsi Reykjavíkur, til heiðurs þeim 2.900 konum sem dvalið hafa í athvarfinu´frá stofnun þess.
Í tilefni af 25 ára afmæli Kvennaathvarfsins 6. desember n.k. verður haldin sigurhátið í Ráðhúsi Reykjavíkur til heiðurs konunum sem dvalið hafa í athvarfinu frá upphafi. Samhliða er ætlunin að hafa ljósmyndasýningu í Ráðhúsinu, þar sem sýndar verða u.þ.b. 2.900 myndir af konum, jafn mörgum og konurnar eru sem dvalið hafa í athvarfinu. Markmiðið er að sjóngera þennan hóp og minna konur sem enn búa við ofbeldi á að það er til leið út úr því. Þeim sem vilja taka þátt í því að heiðra konur sem tekið hafa þetta stóra skref út úr ofbeldissambandi og inn í Kvennaathvarfið er bent á að senda Kvennaathvarfinu mynd konum sem vilja leggja þessu verkefni lið. Á hverri mynd skal vera ein kona, 18 ára eða eldri og að sjálfsögðu þarf hún að vilja sjálf vera á myndinni. Myndir er hægt að senda á netfangið sigthrudur@kvennaathvarf.is eða í pósthólf 1486, 121 Reykjavík.
