Fréttir
Starfskona óskast í Kvennaathvarfið
Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu í afleysingar í fæðingarorlofi. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytta vaktavinnu. Upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf í síma 5613740 eða netfangið sigthrudur@kvennaathvarf.is. Umsóknarfrestur er til 5. nóvember n.k. og skulu umsóknir berast í netfang framkvæmdastýru eða til Samtaka um kvennaathvarf, pósthólf 1486, 121 Reykjavík
