Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Ráðstefnan Karlar til ábyrgðar

7.8.2007

Í tilefni Árs jafnra tækifæra mun Jafnréttisstofa standa að ráðstefnunni Karlar til ábyrgðar. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 30. ágúst í Kornhlöðunni í Reykjavík frá klukkan 9 til 16 og verður dagskráin tvískipt.

Fyrir hádegi verður lokuð námsstefna þar sem Marius Råkil, norskur sálfræðingur og forsvarsmaður verkefnisins Vestfjord /Alternative to Violence, verður með erindi þar sem hann mun á ítarlegan máta kynna verkefni og reynsluna af því. Á þennan fund verða boðaðir fulltrúar frá ýmsum stofnunum, félögum og ráðuneytum.

Eftir hádegi verður svo opinn fundur þar sem Marius verður einnig með erindi ásamt íslenskum sérfræðingum. Þar á meðal verða Einar Gylfi Jónsson og Andrés Ragnarsson sálfræðingar verkefnisins Karlar til ábyrgðar. Markmiðið með þessari ráðstefnu er að vekja fólk til umhugsunar um ábyrgð karla á ofbeldi gegn konum.

Karlar til ábyrgðar er verkefni sem hófst árið 1998 og var komið aftur af stað í fyrra eftir fimm ára hlé. Um er að ræða eina sérhæfða meðferðaúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.