Fréttir
Hlaupið til styrktar Kvennaathvarfinu 18. ágúst 2007
Nú er hægt að hlaupa Reykjavíkurmaraþon og láta Kvennaathvarfið njóta góðs af. Glitnir borgar 500 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra viðskiptavinar og 3.000 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra starfsmanns.
Nú er hægt að hlaupa Reykjavíkurmaraþon og láta Kvennaathvarfið njóta góðs af. Glitnir borgar 500 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra viðskiptavinar og 3.000 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra starfsmanns. Einnig er hægt að heita á einstaka hlaupara.
Glitnir er samstarfsaðili maraþonsins sem nú heitir Reykjavíkurmaraþon Glitnis. Hlaupið verður haldið í 24. sinn laugardaginn 18. ágúst n.k.
Kjörorð Reykjavíkurmaraþons Glitnis 2007 er Allir sigra! Það vísar til þess að allur almenningur á sem fyrr erindi í hlaupið og finnur sér vegalengd og hraða við hæfi. Hægt er að velja um fjórar vegalengdir auk Latabæjarmaraþonsins; 3 km (skemmtiskokk), 10 km, 21 km (hálfmaraþon) og 42 km. (maraþon).
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í hlaupinu og styrkja Kvennaathvarfið í leiðinni. Skráning og nánari upplýsingar eru á marathon.is
