Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Svar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við fyrirspurn Samtaka um kvennaathvarf

9.5.2007

Samtökum um kvennaathvarf hefur borist eftirfarandi svar við fyrirspurn til Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs

1)     Er Vinstrihreyfingin – grænt framboð tilbúin að styðja Samtök um kvennaathvarf í því verkefni að fjárfesta í heppilegu húsnæði fyrir starfsemina?

 

2)      Er Vinstrihreyfingin – grænt framboð tilbúin til að sjá til þess að framlög til reksturs Kvennaathvarfsins verði tryggður þannig að hægt verði að veita þá þjónustu  sem hefur orðið að draga úr vegna fjárskorts og að unnt sé að hækka laun starfskvenna til samræmis við sambærileg störf í þjóðfélaginu?

 

Ágætu Kvennaathvarfskonur,

 

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lagt til sérstakt átak til að bæta starfsumhverfi kvennahreyfinga á Íslandi. Ályktunin er svohljóðandi: 

Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra að stuðla að bættu starfsumhverfi kvenna-hreyfingarinnar og annarra hópa sem vinna að jafnari stöðu kynjanna á Íslandi. Það verði m.a. gert á eftirfarandi hátt: a. Stofnaður verði sjóður með lið í fjárlögum í þeim tilgangi að styrkja hvers konar starf félagasamtaka, hópa og einstaklinga sem miðað getur að jafnari stöðu kynjanna. Hluta sjóðsins verði varið til þess að tryggja þátttöku sömu hópa í alþjóðlegu starfi. b. Jafnréttisfulltrúum eða öðrum starfsmönnum ráðuneyta verði falið að koma á beinum tengslum fagráðuneyta og þeirra samtaka, hópa og einstaklinga sem innan starfssviðs hvers ráðuneytis vinna að jafnari stöðu kynjanna á hverjum tíma. Eins og ályktunin gefur til kynna ætla Vinstri græn sér að nýta þá þekkingu og reynslu sem býr í kvennahreyfingunni til að vinna að jafnrétti. Eitt stærsta verkefni sem bíður okkar er að uppræta kynbundið ofbeldi og þar er nauðsynlegt að byggja á áratuga reynslu félagasamtaka eins og Samtaka um kvennaathvarf. Aðeins eitt athvarf er starfrækt hér á landi og því nauðsynlegt að það rúmi konur og börn sem þangað þurfa að sækja og sé aðgengilegt öllum. Slíkt þarf að vinna í góðri samvinnu Samtaka um kvennaathvarf og Félagsmálaráðuneytisins. Að öðru leyti bendum við á kvenfrelsisáherslur okkar sem miða meðal annars að því að styðja við rannsóknir og starf frjálsra félagasamtaka, tryggja kynjasjónarmið í fjárveitingum hins opinbera og koma ábyrgð á ofbeldi þangað sem það á heima.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.