Fréttir
Fyrirspurn Samtaka um kvennaathvarf til stjórnmálaflokkanna
Samtök um kvennaathvarf hafa starfrækt kvennaathvarf í 25 ár og hefur fjármögnun starfseminnar aðallega komið frá ríki og sveitarfélögum. Sú breyting hefur orðið á undanförnum árum að sífellt erfiðara hefur verið að fá stykri frá sveitarfélögunum og þar af leiðandi hefur framlag ríkisins orðið að standa undir stærra hlutfalli kostnaðar við rekstur athvarfsins. Allra leiða hefur verið leitað til að reka athvarfið með hagkvæmum hætti og hefur t.d. verið fækkað verulega í starfskvennahópnum með tilheyrandi samdrætti í þjónustu. Svo dæmi sé nefnt hefur ekki verið barnastarfsmaður í athvarfinu í mörg undanfarin ár. Stöðug aukning hefur verið í aðsókn að athvarfinu, auk þess sem meðal dvalartími hverrar konur hefur lengst. Einnig hefur aðsókn í ráðgjafar- og stuðningsviðtöl aukist mjög, en þá þjónustu sækja nokkur hundruð konur árlega, án þess að koma til dvalar. Fjárskortur hefur hamlað því að ekki hefur verið hægt að halda úti sjálfshjálparhópum sem notið hafa mikilla vinsælda og skilað miklum árangri og ekki hefur heldur verið unnt að verða við sífellt háværari kröfum um þjónustu á landsbyggðinni. Hlutfall erlendra kvenna hefur aukist með hverju árinu og má nefna að á síðasta ári voru 41% dvalarkvenna af erlendum uppruna. Flestar þurfa þær meiri og fjölbreyttari þjónustu en íslenskar dvalarkonur, svo sem túlkaþjónustu og meiri upplýsingar um íslenskt samfélag og þau úrræði sem eru í boði. Eitt brýnasta verkefni Samtaka um kvennaathvarf er að finna starfseminni nýtt húsnæði. Sem dæmi um aðstöðuskort í núverandi húsi má nefna að þar eru þrjú svefnherbergi, eitt salerni fyrir dvalarkonur og ein sturta. Á síðasta ári voru að meðaltali fjórar konur og þrjú börn í athvarfinu á degi hverjum en miklar sveiflur eru í aðsókn og t.d. voru nýlega 16 dvalargestir í húsinu um nokkurra daga skeið. Þá má nefna að aðgengi hreyfihamlaðra að núverandi húsnæði er alls ófullnægjandi. Annað vandamál sem ógnar starfseminni eru tíð starfskvennaskipti. Óþarft er að tíunda hversu dýrmætt það er að hafa reyndar og vel menntaðar starfskonur. Ástæður sem gefnar eru fyrir tíðum skiptum eru einkum tvær; mikið álag í starfi og lág laun. Með vísan í ofanritað er óskað eftir svörum við eftirfarandi spurningum: 1) Er ........ tilbúin/n að styðja Samtök um kvennaathvarf í því verkefni að fjárfesta í heppilegu húsnæði fyrir starfsemina? 2) Er ........ tilbúin/n til að sjá til þess að framlög til reksturs Kvennaathvarfsins verði tryggður þannig að hægt verði að veita þá þjónstu sem hefur orðið að draga úr vegna fjárskorts og að unnt sé að hækka laun starfskvenna til samræmis við sambærileg störf í þjóðfélaginu?
