Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu.

16.4.2007

Starfskona óskast í Kvennaathvarfið. Starfið er krefjandi vaktavinna sem felst í að aðstoða konur og börn sem leita í athvarfið. Ekki er krafist sérstakrar menntunar, en starfskonur skulu vera orðnar 25 ára og búa yfir nærgætni, hæfileikum til að vinna sjálfstætt og skipulega, og getu til að ráða við krefjandi aðstæður í mannlegum samskiptum. Áætluð er tveggja vikna þjálfun í upphafi starfs.  Einnig er leitað að starfskonu í sumarafleysingar og, í framhaldinu, afleysingar vegna fæðingarorlofs.  Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf í síma 561 3740 eða netfangi: sigthrudur@kvennaathvarf.is.  Umsóknir berist Samtökum um kvennaathvarf, pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða í netfang framkvæmdastýru fyrir 24. apríl n.k.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.