22.12.2007
:
Styrkur Vatnsvirkjans til jólahalds í Kvennaathvarfinu
Vatnsvirkinn ákvað að gefa viðskiptavinum sínum ekki hefðbundnar jólagjafir þetta árið en veita í staðinn fjármagni í að stuðla að gleðilegum jólum í Kvennaathvarfinu. Fyrirtækið greiddi allan kostnað við jólahald í Kvennaathvarfinu og færði dvalarkonum og börnum auk þess veglegar gjarfir. Samtök um kvennaathvarf þakka Vatnsvirkjanum ómetanlegan styrk og hlýhug í garð athvarfsins og íbúa þess.
22.12.2007
:
Peningagjöf frá Kvenfélagi Selfoss
Kvenfélag Selfoss færði Kvennaathvarfinu nýlega 100.000 króna styrk. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kvenfélag Selfoss sýnir Kvennaathvarfinu hlýhug í verki og kunna Samtök um kvennaathvarf félaginu bestu þakkir fyrir stuðninginn.
4.12.2007
:
Kvennaathvarfið 25 ára
Fimmtudaginn 6. desember eru liðin 25 ár frá því að Kvennaathvarfið opnaði. Í tilefni af því bjóðum við til sigurhátíðar Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og verður dagskráin tileinkuð konunum sem brotist hafa út úr ofbeldissamböndum. Reynt verður að varpa ljósi á lífið í athvarfinu með minningarbrotum starfskvenna og dvalarkvenna í gegn um tíðina auk þess sem sýnt verður brot úr kynningarmyndbandi um Kvennaathvarfið sem verið er að vinna. Einnig verður boðið upp á ávörp og tónlist, kaffi og konfekt. Að auki verður í salnum ljósmyndasýningin Kraftakonur en hún samanstendur af 2887 myndum af konum, jafnmörgum og kraftakonurnar eru sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu frá upphafi. Með myndunum fylgja kveðjur kvennanna á myndunum til kraftakvennanna sem brotist hafa úr fjötrum ofbeldisins. Hátíðin byrjar klukkan 17 og er öllum opin.
1.12.2007
:
Áskorun til stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali
Skrifið undir áskorun 16 daga átaks til stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands - mannrettindi.is
13.11.2007
:
Ljósmyndasýningin Kraftakonur
Í tilefni af 25 ára afmæli Kvennaathvarfsins 6. desember n.k. verður haldin sigurhátið í Ráðhúsi Reykjavíkur til heiðurs konunum sem dvalið hafa í athvarfinu frá upphafi. Samhliða er ætlunin að hafa ljósmyndasýningu í Ráðhúsinu, þar sem sýndar verða u.þ.b. 2.900 myndir af konum, jafn mörgum og konurnar eru sem dvalið hafa í athvarfinu. Markmiðið er að sjóngera þennan hóp og minna konur sem enn búa við ofbeldi á að það er til leið út úr því. Þeim sem vilja taka þátt í því að heiðra konur sem tekið hafa þetta stóra skref út úr ofbeldissambandi og inn í Kvennaathvarfið er bent á að senda Kvennaathvarfinu mynd konum sem vilja leggja þessu verkefni lið. Á hverri mynd skal vera ein kona, 18 ára eða eldri og að sjálfsögðu þarf hún að vilja sjálf vera á myndinni. Myndir er hægt að senda á netfangið
sigthrudur@kvennaathvarf.is eða í pósthólf 1486, 121 Reykjavík.
9.11.2007
:
Peningagjöf frá Zontaklúbbnum Emblu
Enn hefur Zontaklúbburinn Embla sýnt Kvennaathvarfinu hlýhug í verki en klúbburinn færði athvarfinu nýlega peningagjöf, 100.000 krónur sem verða notaðar til að fjármagna túlkaþjónustu fyrir konur af erlendum uppruna. Samtök um kvennaathvarf kunna Emblum bestu þakkir fyrir gjöfina og þann styrk sem það er að mikilvægi starfs okkar sé viðurkennt með þessum hætti.
29.10.2007
:
Starfskona óskast í Kvennaathvarfið
Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu í afleysingar í fæðingarorlofi. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytta vaktavinnu. Upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf í síma 5613740 eða netfangið
sigthrudur@kvennaathvarf.is. Umsóknarfrestur er til 5. nóvember n.k. og skulu umsóknir berast í netfang framkvæmdastýru eða til Samtaka um kvennaathvarf, pósthólf 1486, 121 Reykjavík
5.9.2007
:
Fyrrverandi dvalarkonur og börn
Vegna heimildaöflunar í tilefni 25 ára afmælis Kvennaathvarsins langar okkur að heyra frá fyrrverandi dvalarkonum og börnum. Vinsamlega hafið samband við Sigþrúði Guðmundsdóttur framkvæmdastýru í síma 5613740 eða í netfang sigthrudur@kvennaathvarf.is
Í tilefni Árs jafnra tækifæra mun Jafnréttisstofa standa að ráðstefnunni Karlar til ábyrgðar. Ráðstefnan verður haldin fimmtudaginn 30. ágúst í Kornhlöðunni í Reykjavík frá klukkan 9 til 16 og verður dagskráin tvískipt.
nánar
15.6.2007
:
Hlaupið til styrktar Kvennaathvarfinu 18. ágúst 2007
Nú er hægt að hlaupa Reykjavíkurmaraþon og láta Kvennaathvarfið njóta góðs af. Glitnir borgar 500 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra viðskiptavinar og 3.000 kr. fyrir hvern hlaupinn kílómetra starfsmanns. Einnig er hægt að heita á einstaka hlaupara.
Glitnir er samstarfsaðili maraþonsins sem nú heitir Reykjavíkurmaraþon Glitnis. Hlaupið verður haldið í 24. sinn laugardaginn 18. ágúst n.k.
Kjörorð Reykjavíkurmaraþons Glitnis 2007 er Allir sigra! Það vísar til þess að allur almenningur á sem fyrr erindi í hlaupið og finnur sér vegalengd og hraða við hæfi. Hægt er að velja um fjórar vegalengdir auk Latabæjarmaraþonsins; 3 km (skemmtiskokk), 10 km, 21 km (hálfmaraþon) og 42 km. (maraþon).
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í hlaupinu og styrkja Kvennaathvarfið í leiðinni. Skráning og nánari upplýsingar eru á marathon.is
31.5.2007
:
Samtök um kvennaathvarf 25 ára
Laugardaginn 2. júní n.k. verða liðin 25 ár frá stofnfundi Samtaka um kvennaathvarf. Að því tilefni verður boðið til afmælisfundar í Iðnó n.k. laugardag kl. 14:00. Boðið verður upp á kaffi, kleinur og stuttar hugleiðingar valinkunnra kvenna í tilefni dagsins. Auk þess mun Brynhildur Guðjónsdóttir flytja lög úr söngleiknum Edith Piaf og tónlistarfólk úr Borgarfirðinum lög úr Saumastofunni. Ávarp flytja, Berglind Eyjólfsdóttir rannsóknarlögreglumaður, Drífa Snædal fv. framkvæmdastýra samtakanna, Una María Óskarsdóttir varaforseti Kvenfélagasambands Íslands, Kristín Ástgeirsdóttir frá Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum, Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri, Tatjana Latinovic frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna og Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Eflingu-stéttarfélagi. Fundarstjóri verður Þórhildur Þorleifsdóttir. Fundurinn er öllum opinn og aðgangseyrir er enginn.
15.5.2007
:
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf
Við minnum á áður auglýstan aðalfund Samtaka um kvennaathvarf sem verður haldinn á Litlubrekku á Lækjarbrekku, miðvikudaginn 30. maí kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Öll áhugasöm um starfsemi samtakanna eru hvött til að mæta.
9.5.2007
:
Svar Íslandshreyfingarinnar við fyrirspurn Samtaka um kvennaatvarf
Samtökum um kvennaathvarf hefur borist eftirfarandi svör við fyriraspurnum til Íslandshreyfingarinnar
1) Er Íslandshreyfingin tilbúin að styðja Samtök um kvennaathvarf í því verkefni að fjárfesta í heppilegu húsnæði fyrir starfsemina?
Já
2) Er Íslandshreyfingin tilbúin til að sjá til þess að framlög til reksturs Kvennaathvarfsins verði tryggður þannig að hægt verði að veita þá þjónstu sem hefur orðið að draga úr vegna fjárskorts og að unnt sé að hækka laun starfskvenna til samræmis við sambærileg störf í þjóðfélaginu?
Já
Samtökum um kvennaathvarf hefur borist eftirfarandi svar við fyrirspurn til Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
1) Er Vinstrihreyfingin – grænt framboð tilbúin að styðja Samtök um kvennaathvarf í því verkefni að fjárfesta í heppilegu húsnæði fyrir starfsemina?
2) Er Vinstrihreyfingin – grænt framboð tilbúin til að sjá til þess að framlög til reksturs Kvennaathvarfsins verði tryggður þannig að hægt verði að veita þá þjónustu sem hefur orðið að draga úr vegna fjárskorts og að unnt sé að hækka laun starfskvenna til samræmis við sambærileg störf í þjóðfélaginu?
Ágætu Kvennaathvarfskonur,
Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lagt til sérstakt átak til að bæta starfsumhverfi kvennahreyfinga á Íslandi. Ályktunin er svohljóðandi:
nánar
Samtök um kvennaathvarf sendu stjórnmálaflokkunum eftirfarandi bréf í aðdraganda kostinga. Svör flokkanna við fyrirspurnum verða birt hér á síðunni eftir því sem þau berast.
nánar
16.4.2007
:
Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu.
Starfskona óskast í Kvennaathvarfið. Starfið er krefjandi vaktavinna sem felst í að aðstoða konur og börn sem leita í athvarfið. Ekki er krafist sérstakrar menntunar, en starfskonur skulu vera orðnar 25 ára og búa yfir nærgætni, hæfileikum til að vinna sjálfstætt og skipulega, og getu til að ráða við krefjandi aðstæður í mannlegum samskiptum. Áætluð er tveggja vikna þjálfun í upphafi starfs. Einnig er leitað að starfskonu í sumarafleysingar og, í framhaldinu, afleysingar vegna fæðingarorlofs. Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf í síma 561 3740 eða netfangi: sigthrudur@kvennaathvarf.is. Umsóknir berist Samtökum um kvennaathvarf, pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða í netfang framkvæmdastýru fyrir 24. apríl n.k.
Stefnumót viið stjórnmálaflokkana á Grandhótel þriðjudaginn 17. apríl kl. 8:00-9:30.
Erindi flytja Lilja Mósesdóttir hagfræðingur og Þórey Laufey Diðriksdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Á eftir sitja fulltrúar stjórnmálaflokkanna fyrir svörum. Fundarstjóri Tatjana Latinovic.
nánar
13.4.2007
:
Styrkur úr Menningarsjóði Landsbankans
Nýlega fengu Samtök um kvennaathvarf eina milljón króna úr Menningarsjóði Landsbankans. Ljóst er að þessi styrkur kemur sér vel og nú bíður okkar það verkefni að finna út hvernig hann nýtist best konum og börnum sem nota þjónustu athvarfsins. Samtök um kvennaathvarf þakka kærlega fyrir sig.
13.4.2007
:
Stefnumót við stjórnmálaflokkana
Þriðjudaginn 17. apríl kl. 8:00-9:30 verður stefnumót 11 kvennasamtaka og forystumanna stjórnmálaflokkanna um launamál haldið á Grandhótel. Stefnumótið er öllum opið, aðgangseyrir er enginn en boðið er upp á morgunverð fyrir kr. 1500.-
26.3.2007
:
Frestun aðalfundar Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf, sem auglýstur hafði verið föstudaginn 30. mars. n.k. hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum. Fundurinn verður auglýstur aftur síðar.
22.3.2007
:
Fjölgun í Kvennaathvarfinu á milli ára.
Komum í Kvennaathvarfið hefur fjölgað ár frá ári undanfarin fjögur ár. Árið 2006 voru skráðar 712 komur í athvarfið en árið 2005 voru þær 557. Mestu munar um aukna eftirspurn eftir viðtölum, en konur geta komið í stuðningsvitðal og ráðgjöf án þess að koma til dvalar. Árið 2006 komu 99 konur til dvalar í athvarfinu og með þeim 57 börn. 218 konur komu í rúmlega 600 viðtöl.