Fréttir
16 daga átak
Átakið 2006 er tileinkað mannréttinafrömuðum sem hafa átt þátt í 16 daga átaki og þeim sem hafa þurft að þola ofsóknir og ofbeldi vegna starfs síns að jafnréttismálum og jafnvel látið lífið. Í ár verður litið yfir farinn veg og þess minnst hvaða árangur hefur náðst í baráttunni gegn kynbundu ofbeldi um allan heim ásamt því að endurskoða hvaða leiðir eru best fallnar til að halda baráttunni áfram.
Staðið verður fyrir 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi í þriðja sinn á Íslandi dagana 24. nóvember til 10. desember. Á fjórða tug samtaka og stofnana munu standa fyrir fundum, mótmælastöðu við dómstóla, málþingum, greinaskrifum, gjörningum, kvikmyndasýningum og öðrum viðburðum þá daga sem átakið varir.
Eftirtaldir aðilar standa að 16 daga átakinu í ár:
Alnæmisbörn, Alnæmissamtökin á Íslandi, Alþjóðahús, Amnesty International á Íslandi, Barnaheill, Blátt áfram, Bríet – félag ungra femínista, Femínistafélag Íslands, Forma, Jafningjafræðsla Hins hússins, Jafnréttisstofa, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands, Kvennaráðgjöfin, Kvennasögusafnið, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Neyðarmóttaka vegna nauðgunar, Prestur innflytjenda, Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, Rauði Kross Íslands, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um kvennaathvarf, Soroptimistasamband Íslands, Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa, Stígamót, Styrkur – úr hlekkjum til frelsis, UNICEF á Íslandi, UNIFEM á Íslandi, V-dagssamtökin, Zonta á Íslandi, Þjóðkirkjan
