Fréttir
Mansal á Íslandi - skýrsla frá Bandaríska sendiráðinu
Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi hefur kynnt árlega skýrslu um mansal hér á landi. Í skýrslunni kemur fram að þessi mál hafa varla verið á dagskrá og gæti það verið skýring þess að engin mansalsmál hafa verið upplýst. Umræðan um mansal hefur verið lítil á Íslandi undanfarið og engar reglur eru til um öflun upplýsinga né áætlun um aðgerðir til aðstoðar þeim sem lenda í mansali. Þó eru sterk einkenni þess að bæði er flutt inn vinnuafl til starfa langt undir töxtum og sömuleiðis eru konur fluttar inn til starfa í kynlífsiðnaðinum. Þá er í skýrslunni fjallað um þær erlendu konur sem giftast íslenskum karlmönnum í leit að betra lífi en sumar lenda illa í því og eru engu betur settar en aðrar konur sem seldar eru mansali. Þetta á sem betur fer við í minnihluta tilvika en er engu að síður áhyggjuefni. Það er greinilega verk að vinna í þessum málum því mansal þrífst í skjóli afskiptaleysis.
