Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Ísland eftirbátur annarra Evrópuþjóða

15.6.2006

Evrópuráðið hefur gert úttekt á aðgerðum aðildarríkja gegn ofbeldi karla gegn konum. Af 31 aðildarþjóð hefur 21 samþykkt aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi og því miður vermir Ísland bekkinn með þeim þjóðum sem síst standa sig í þeim efnum, ein norrænna þjóða. Vitað er að aðgerðaáætlun var kynnt í ríkisstjórn Íslands í mars en hún hefur ekki enn verið samþykkt eða kynnt fyrir þjóðinni. Samkvæmt öðrum viðmiðum í skýrslu Evrópuráðsins er greinilegt að íslensk stjórnvöld eru eftirbátar annarra þjóða í þessum málaflokki. Í flestum löndum er starfandi opinber nefnd sem hefur það hlutverk að innleiða breytingar til batnaðar og meta árangur þeirra í samráði við frjáls félagasamtök, þá er Ísland eitt af fáum ríkjum þar sem andlegt kynbundið ofbeldi er ekki sérstaklega refsivert.

Gleðifréttirnar eru þær að stjórnvöld hafa tekið við sér undanfarin tvö ár varðandi skráningu kynbundins ofbeldis hjá lögreglu og úrræði fyrir ofbeldismenn. Þá tryggir hið opinbera einnig fjárframlög til frjálsra félagasamtaka eins og Samtaka um kvennaathvarf og Stígamóta til að reka þjónustu við konur sem verða fyrir ofbeldi. Fræðslu til fagstétta og skólabarna er hins vegar verulega ábótavant hér á landi og eins siðareglur fjölmiðla í umfjöllun um mál er varða ofbeldi karla gegn konum. Þá sárvantar nýlegar rannsóknir á þessu sviði hér á landi, en síðasta rannsókn á ofbeldi gegn konum var framkvæmd 1996 og tók aðeins til líkamlegs ofbeldis maka.

Skýrsla Evrópuráðsins rennir stoðum undir þær tillögur sem Samtök um kvennaathvarf, ásamt öðrum félagasamtökum, hafa lagt fyrir stjórnvöld. Hún sýnir einnig glöggt að þau ríki sem myndarlegast taka á málum gera það með heildstæðum hætti í góðu samráði við frjáls félagasamtök. Skýrsluna í heild má nálgast hér.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.