Fréttir
Málum bæinn bleikan
15:30 Dularfullt hvarf kvenna úr vísindum – hvert hafa allar ungu konurnar farið? Fyrirlestur Önju Andersen stjarneðlisfræðings í Hátíðarsal Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku og er á vegum Jafnréttisnefndar HÍ og RIKK.
16:45 Safnast saman í Aðalbyggingu HÍ, þar sem verður boðið upp á hressingu fyrir göngu.
17:00 Gengið af stað í Kvosina undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur í boði Kvennasögusafns.
18:00 Kvenréttindafélag Íslands býður upp á veitingar og hressandi dagskrá á Hallveigarstöðum.
20:30 Kvennamessa Kvennakirkjunnar, Kvenréttindafélags Íslands og Kvenfélagasamband Íslands.
20:00 Bleikir tónleikar Ungliðahóps Femínistafélagsins á Barnum, Laugavegi 22.
UNIFEM á Íslandi verður með armbandssölu í World Class og Body Shop. Armböndin eru að sjálfsögðu bleik að lit og allur ágóði rennur til starfs UNIFEM í Afganistan.
Femínistafélagið mun afhenda hvatningarverðlaunin Bleiku steinana 19. júní.
Aðstandendur Málum bæinn bleikan eru:
Bríet
Kvenréttindafélag Íslands
Stígamót
Femínistafélag Íslands
Femínistafélag Akureyrar
W.O.M.E.N.
Kvennaráðgjöfin
Kvenfélagasamband Íslands
Samtök um Kvennaathvarf
Prestur innflytjenda
Kvennasögusafn
UNIFEM á Íslandi
