Fréttir
Skrifað undir samning um Karla til ábyrgðar
Samningur um að endurvekja verkefni Karlar til ábyrgðar hefur verið undirritaður af Félagsmálaráðherra og þeim sálfræðingum sem aðstoða ofbeldismenn við að hætta að beita ofbeldi. Samningurinn felur í sér fjárframlög sem tryggja starfið að minnsta kosti út árið 2007. Að því loknu mun verkefnisstjórn meta þörf á framhaldinu, en hana skipa fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og Samtaka um kvennaathvarf. Með þessu er mikilvægum áfanga náð í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og staðfestir þá sýn stjórnvalda að ofbeldi er samfélagslegt vandamál á ábyrgð þeirra sem því beita. Stjórn og starfskonur Samtaka um kvennaathvarf fagna áfanganum og hlakka til að fást við verkefnið framundan. Jafnframt er óskað eftir því að Karlar til ábyrgðar sé fyrsta skrefið í átt að umfangsmiklum aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.
