Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Yfirstígum óttann - ráðstefna á vegum Blátt áfram

18.4.2006

Ráðstefna á vegum Blátt áfram verður haldin 4. maí 2006 í Kennaraháskólanum. Aðal fyrirlesari er Robert E. Longo, sérfræðingur frá bandaríkjunum sem hefur unnið í málaflokknum síðastliðin 25 ár. Íslensku fyrirlesararnir munu kynna það sem er að gerast í íslensku samfélagi varðandi kynferðislegt ofbeldi. Ráðstefnan hefst klukkan níu og stendur til fimm. Ráðstefnugjald er 9.000 krónur, en 5.000 krónur fyrir nemendur. Skráning fer fram á www.blattafram.is. Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum til að breyta íslensku samfélagi.

Ráðstefnan hefst kl 9:00 með stuttri kynningu á Blátt áfram og markmiði ráðstefnunnar.

Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Hluti af forvörnum er að takast á við fordóma gagnvart fólki sem lifir af ofbeldi með fræðslu.  Fordómar eru stærsti hluti vandans.  Einnig þurfum við að taka ábyrgð á veiku fólki (gerendum) og koma með skýr skilaboð um hvernig við ætlum að stöðva þennan vítahring sem kynferðislegt ofbeldi er.  Kynferðisafbrotamenn og konur þurfa hjálp, hvert geta þau leitað?  Samfélag byggt upp af brotnu fólki er brotið samfélag. Fólk sem tekst á við afleiðingar ofbeldis er sterkt og hugrakkt fólk sem sýnir að hægt sé að horfast í augu við og yfirstíga óttann. 

9:05 Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.

9:15 – 10:00  Robert E. Longo, MRC, LPC. Að fyrirbyggja kynferðislega misnotkun á börnum: Farið yfir mismunandi nálgun og notkun forvarna og hvernig þær virka. Þróun fyrirbyggjandi aðgerða í gegnum tíðina. 

Í þessu erindi verður litið um öxl og farið yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til undanfarin 30 ár í bandaríkjunum til að koma í veg fyrir kynferðislega misnotkun á börnum. Farið verður yfir lagabreytingar, aðgerðir grasrótarhreyfinga og þá þróun sem átt hefur sér stað í geðverndarmálum.

10:00 – 10:15  Kaffihlé

10:15 – 12:00  Robert E. Longo, MRC, LPC Börn sem hafa verið misnotuð kynferðislega: Áhrif og bataferli. Skömm, þol, lífsvilji og heilun.

Í þessu erindi verður farið yfir þau áhrif sem kynferðisleg misnotkun hefur á börn og hvernig við getum hjálpað þeim að ná bata.

12:00 – 13:00 Hádegishlé

13:00 – 14:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega misnotkun. Tíðni, tafarlaus íhlutun og meðferð.

Í þessu erindi verður fjallað um þau tilfelli þar sem ungt fólk beitir aðra kynferðislegu ofbeldi. Hvernig getum við nálgast og tekist á við þessi tilfelli?

14:00 – 15:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Fullorðnir sem gera sig seka um kynferðislega misnotkun. Tíðni, íhlutun og meðferð.

Í þessu erindi verður fjallað um þau tilfelli þar sem börn eru misnotuð af fullorðnum einstaklingum, bæði körlum og konum, og hvernig við getum brugðist við því vandamáli. Eigum við að loka alla inni? Senda alla í sálfræðimeðferð? Þurfum við strangari viðurlög – eða eigum við að leggja höfuðáherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir?

15:00 – 15:15 Kaffihlé

15:15 – 15:45  Þorbjörg Sveisndóttir verkefnastjóri á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss.  Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna áhyggjuefni og viðbrögð við frásögnum barna og ungmenna um kynferðislega misnotkun.

15:45 – 16:05  Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafanemi á fjórða ári í HÍ:  Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar um kynferðislega misnotkun á málafjölda í Barnahúsi.

16:05 – 16:35  Jón Friðrik Sigurðsson forstöðusálfræðingur á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss: Ungmenni sem beita aðra kynferðislegri misnotkun, staðan á Íslandi og úrræði.

16:35 – 16:50 Opnar umræður og spurningar frá gestum til fyrirlesara.

16:50 – 17:00 Ráðstefnulok.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.