Fréttir
Kynferðisbrotafrumvarp lagt fram
Í haust fékk Ragnheiður Bragadóttir, lagaprófessor, það verkefni að endurskoða kynferðisbrotakafla almennu hegningarlaganna og koma með tillögur að úrbótum. Tillögurnar hafa legið fyrir um nokkurn tíma og gafst öllum færi á að koma með athugasemdir varðandi þær. Nú hefur dómsmálaráðherra lagt fram frumvarp byggt á tillögunum og hafa þær ekki tekið neinum breytingum í umsagnaferlinu. Hér má sjá umsögn Samtaka um kvennaathvarf við tillögurnar á sínum tíma.
