Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Umsögn um austurrísku leiðina

10.3.2006

Samtök um kvennaathvarf hafa skilað umsögn um frumvarp til laga þar sem lagt er til að austurríska leiðin verði farin þegar lögregla er kölluð til út af heimilisofbeldi. Tillögurnar fela á sér að lögregla fái heimild til að vísa manni brott af heimili sínu þegar um ofbeldi er að ræða og þá taki gildi heimsóknarbann viðkomandi manns. Þannig eru ofbeldismenn teknir út af heimilum en ekki konur sem verða fyrir ofbeldi. Samtök um kvennaathvarf styðja þessar tillögur og sama má segja um fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna sem mættu á fund, haldinn í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi í desember á síðasta ári. Því má ætla að forsendur séu til lagabreytinga í þessa veru. Samtök um kvennaathvarf ítreka þó þá ósk sína að til starfa taki vinnuhópur, skipaður sérfræðingum og strjórnmálamönnum sem hafi það verk með höndum að koma með heildstæðar tillögur um aðgerðir, lagalegar og félagslegar til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.