Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Umsögn um kynferðisbrotafrumvarp

1.3.2006

Í febrúar kynnti dómsmálaráðuneytið tillögur að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennu hegningarlaganna. Frumvarpið mun að öllum líkindum líta dagsins ljós í þessum mánuði en almenningi og félagasamtökum gefst kostur á að veita umsögn um tillögurnar áður en frumvarpið er fullbúið. Samtök um kvennaathvarf nýttu sér það að sjálfsögðu og sendu umsögn sem byggist á þeim tillögum sem samtökin hafa áður kynnt. Nú um mundir eru mörg ráðuneyti að grípa til ráðstafana gegn kynbundnu ofbeldi og má nefna aðgerðaáætlun sem er í smíðum í félagsmálaráðuneytinu, vinnureglur fagfólks sem ritaðar eru í menntamálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu, auk þess sem dómsmálaráðuneytið vinnur að lagabreytingum. Samtök um kvennaathvarf leggur til að lagabreytingar og félagslegar úrbætur séu unnar samhliða og í samráði við félagasamtök sem hafa þekkingu á málefninu. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi verður að vera þverfagleg og unnin með heildstæðum hætti. Athugasemdir við einstaka greinar tillagna dómsmálaráðherra má nálgast í umsögn Samtaka um kvennaathvarf auk þess sem ítarlegri tillögur má sjá í tillögum kvennahreyfingarinnar að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.