Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

28.2.2006

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti boða fjöldi félagasamtaka til fundar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þann 8. mars klukkan 17. Fundastjóri er Guðlaug Þóra Marínósdóttir en dagskráin er sem hér segir.

Sigríður Víðis Jónsdóttir, blaðamaður, Ég borða ekki jarðsprengjur.

Þórdís Sigurðardóttir, skrifstofustjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Þróunarsamvinna á nýrri öld.

Hulda Biering, kennari, Grasrót í Mósambík – Konur og menntun.

Elín Jónasdóttir, sálfræðingur, Þar sem fræin þroskast best – reynsla frá Sri Lanka.

Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld les ljóð.

Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður, Til hvers að gefa?

Irma Matchavariani, í stjórn Samtaka kvenna af erl. uppruna, Lítum okkur nær.

María S. Gunnarsdóttir, form. Menningar- og friðarsamtaka MFÍK, Heimurinn hugsaður upp á nýtt.

Margrét M. Norðdahl, myndlistarkona, Sýnir ljósmyndir af verkefni sem unnið var á flóðasvæðum Sri Lanka.

Hljómsveitin AMÍNA spilar.

Að fundinum standa: Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, Bandalag háskólamanna, BSRB, Félag ísl.hjúkrunar-fræðinga, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Samtök herstöðva-andstæðinga, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um kvennaathvarf, Sjúkraliðafélag Íslands, Stígamót, SFR – Stéttarfélag í almannaþjónustu, STRV – Starfsmannafélag Reykajvíkurborgar, Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, Öryrkjabandalag Íslands.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.