Fréttir
STJÓRNARSKRÁ FYRIR OKKUR ÖLL!
Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins á að þjóna okkur öllum og endurspegla það samfélag sem við viljum búa í. Til að svo megi verða hafa kvennasamtök hafið undirskriftasöfnun við tillögur sína um breytingar á stjórnarskránni. Við höfum sögulegt tækifæri til að láta kröfur jafnréttissinna heyrast og breyta hornsteini íslenskra laga í átt til jafnréttis fyrir okkur öll. Nýtum tækifærið, sýnum samstöðu og lýsum yfir stuðningi við tillögurnar á heimasíðu unifem á Íslandi.
