Fréttir
Kynferðisbrotakafli hegningarlaganna endurskoðaður
Birtar hafa verið tillögur dómsmálaráðherra um endurskoðun á lögum um kynferðisbrot. Tillögunum hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda hafa kvennasamtök þrýst mjög á að slík endurskoðun fari fram. Næstu vikur verður vonandi góð umræða um tillögurnar og munu Samtök um kvennaathvarf skila umsögn um tillögurnar í þessum mánuði. Öllum gefst kostur á að leggja fram umsögn til dómsmálaráðuneytisins áður en tillögurnar verða fullbúnar sem frumvarp.
