Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Sniðgöngum vændishótel

10.2.2006

Mansal er því miður útbreitt vandamál á Norðurlöndunum sem og annars staðar og er í sí auknum mæli tengt vændi og kynlífsþjónustu hvers konar. Norðurlandaráð og stofnanir því tengt hafa tekið frumkvæði í baráttu gegn mansali á Norðurlöndum og fyrir ráðinu liggur nú tillaga vinstri flokkahópsins um frekari aðgerðir. Lagt er til: Að Norðurlandaráð noti eingöngu þau hótel sem gefa út tryggingu fyrir því að hótelið taki ekki þátt í miðlun á vændi og að allt starfsfólk þess hafi fengið skriflegar leiðbeiningar þar að lútandi. Einnig eru tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar um að: Hún noti eingöngu þau hótel sem gefa út yfirýsingu um að hótelið sé ekki þátttakandi í miðlun á vændi og að allt starfsfólk þess hafi fengið skriflegar leiðbeiningar þar að lútandi og að sett verði upp heimasíða sem skrái öll þau hótel sem geta sýnt fram á að þau séu ekki þátttakendur í miðlun á vændi. Á heimsaíðunni verði skráð þau hótel á Norðurlöndunum og í nágrannalöndum þeirra þar sem samtökin starfa. Samtök um kvennaathvarf styður þessa tillögu og telur það mikilvægt að opinberar stofnanir taki skýra afstöðu gegn vændi og mansali með virkum aðgerðum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.