Fréttir
Bubbi og Kvennaathvarfið 1986
Á heimasíðu Bubba Morthens, tónlistamanns má lesa áhugaverða grein um hvernig Bubbi studdi Kvennaathvarfið þegar starfsemin átti undir högg að sækja árið 1986. Bubbi hratt af stað tónleikaröð til styrktar Kvennaathvarfinu sem varð öðrum hvatning til að styðja við bakið á hinni nauðsynlegu starfsemi. Á þessum árum fékk Kvennaathvarfið ekki viðeigandi opinberan stuðning og þurfti þar af leiðandi að treysta á styrki frá fyrirtækjum og velvilja einstaklinga eins og Bubba.
