Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttir

Umsögn Samtaka um kvennaathvarf varðandi sameiginlega forsjá sem meginreglu

18.1.2006

Samtök um kvennaathvarf hafa skilað umsögn um frumvarp sem gerir ráð fyrir að sameiginlega forsjá verði meginregla við skilnað eða sambúðarslit. Varað er við því að slík lög séu sett án þess að tillit sé tekið til þess hvort ofbeldi hafi verið beitt á heimilinu eða í skilnaðarferlinu. Bent er á lög á Nýja-sjálandi þar sem börn eru látin njóta vafans ef um ofbeldi er að ræða og sameiginleg forsjá ekki til umræðu í slíkum tilvikum. Svíar settu lög, sambærileg þeim sem lagt er til að við setjum, fyrir átta árum síðan, en í skýrslu umboðsmanns barna í Svíþjóð kemur fram að þau lög tryggja ekki öryggi barna. Svíar ætla því að breyta sínum lögum fljótlega og taka tillit til ofbeldisþáttarins við ákvörðun um forsjá og umgengni. Ef frumvarpið nær fram að ganga á Alþingi eru Íslendingar tíu árum á eftir nágrannaþjóðunum og hafa að engu reynslu annarra þjóða í þessum málum. Það geta verið dýrkeypt mistök fyrir fjölda barna á Íslandi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Leita á vefnum


 

Eldri fréttir


Póstlisti

Skráning á póstlista.

Vinsamlegast athugaðu að netfangið sé rétt slegið inn.


 


þetta vefsvæði Byggir á Eplica

 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.