3.12.2006
:
Fyrirlestur um tengs kynferðisofbeldis og heimilisofbeldis
Haldinn í Þjóðmenningarhúsi (stofu Jóns Sigurðssonar) mánudaginn 4. desmber kl. 12:15-13:00. Ingibjörg Þórðardóttir kynnir niðurstöður rannsóknar sem hún vann upp úr gögnum Kvennaathvarfsins á árunum 2001-2005. Fyrirlesturinn er á vegum Kvennaathvarfs og í samstarfi við 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi.
Í ár er 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 16 sinn. 16 daga átak hefur í 16 ár unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.
nánar
25.9.2006
:
Ný framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf
Sigþrúður Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastýru Samtaka um kvennaathvarf. Hægt er að hafa samband við Sigþrúði í síma 5613740 eða í gegnum tölvupóst í netfangið
sigthrudur@kvennaathvarf.is
Eftir Drífu Snædal framkvæmdastýru SUK
Mansal er að verða stærsti glæpaiðnaðurinn í heiminum þar sem fólk er flutt á milli landa til þrælkunar. Iðnaðurinn sækir fast á hæla fíkniefnasmygls en mansal er talið mun hættuminna og gróðavænlegra. Flestar konur sem seldar eru mansali lenda í kynlífsþrælkun þar sem þær eru neyddar til að stunda vændi. Hinn vestræni heimur rankaði við sér þegar myndin Lilja 4ever var sýnd en Lilja varð tákn þeirra kvenna sem seldar eru mansali um heim allan. Örlög Lilju höfðu áhrif á alla sem horfðu á mynd Lukasar Moodyson en þar segir frá stelpu frá fyrrum austantjaldsríki sem er sannfærð um að hennar bíði betra líf í Svíþjóð. Þar er hún hins vegar hneppt í þrældóm, lokuð inni, svelt og seld fjölda karlmanna þangað til hún gefst einfaldlega upp og fremur sjálfsmorð. Aðferðin sem beitt var til að fá Lilju til Svíþjóðar er ekkert einsdæmi, en sömu aðferðum er beitt hvort sem er til að fá konur og stúlkur til að stunda vændi eða selja þær mansali.
nánar
28.6.2006
:
Mansal á Íslandi - skýrsla frá Bandaríska sendiráðinu
Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi hefur kynnt
árlega skýrslu um mansal hér á landi. Í skýrslunni kemur fram að þessi mál hafa varla verið á dagskrá og gæti það verið skýring þess að engin mansalsmál hafa verið upplýst. Umræðan um mansal hefur verið lítil á Íslandi undanfarið og engar reglur eru til um öflun upplýsinga né áætlun um aðgerðir til aðstoðar þeim sem lenda í mansali. Þó eru sterk einkenni þess að bæði er flutt inn vinnuafl til starfa langt undir töxtum og sömuleiðis eru konur fluttar inn til starfa í kynlífsiðnaðinum. Þá er í
skýrslunni fjallað um þær erlendu konur sem giftast íslenskum karlmönnum í leit að betra lífi en sumar lenda illa í því og eru engu betur settar en aðrar konur sem seldar eru mansali. Þetta á sem betur fer við í minnihluta tilvika en er engu að síður áhyggjuefni. Það er greinilega verk að vinna í þessum málum því mansal þrífst í skjóli afskiptaleysis.
Evrópuráðið hefur gert
úttekt á aðgerðum aðildarríkja gegn ofbeldi karla gegn konum. Af 31 aðildarþjóð hefur 21 samþykkt aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi og því miður vermir Ísland bekkinn með þeim þjóðum sem síst standa sig í þeim efnum, ein norrænna þjóða. Vitað er að aðgerðaáætlun var kynnt í ríkisstjórn Íslands í mars en hún hefur ekki enn verið samþykkt eða kynnt fyrir þjóðinni. Samkvæmt öðrum viðmiðum í skýrslu Evrópuráðsins er greinilegt að íslensk stjórnvöld eru eftirbátar annarra þjóða í þessum málaflokki. Í flestum löndum er starfandi opinber nefnd sem hefur það hlutverk að innleiða breytingar til batnaðar og meta árangur þeirra í samráði við frjáls félagasamtök, þá er Ísland eitt af fáum ríkjum þar sem andlegt kynbundið ofbeldi er ekki sérstaklega refsivert.
nánar
Fögnum 19. júní og lýsum yfir stuðningi við jafnrétti með því að bera eitthvað bleikt þennan dag. Þú getur til dæmis klæðst bleikri flík, flaggað bleiku, sett bleika útstillingu í gluggann hjá þér, borið bleik gleraugu, varalit, blóm o.s.frv., nælt bleika nælu í jakkann þinn... eða bara rifið horn af bleiku blaði og nælt það í barminn. Svona fögnum við 19. júní:
nánar
12.6.2006
:
Fræðslu- og framkvæmdastýra óskast
Samtök um kvennaathvarf auglýsa laust til umsóknar starf fræðslu- og framkvæmdastýru. Starfið er fjölbreytt og unnið í nánum tengslum við stjórn samtakanna, rekstrarstjóra og starfskonur. Í því felst umsjón starfskvennamála, stefnumótun, fræðsla og kynning bæði innan athvarfsins sem utan og ábyrgð á innra starfi athvarfsins. Krafist er háskólaprófs. Nánari upplýsingar veitir Drífa Snædal, starfandi fræðslu- ogframkvæmdastýra, í síma 695 1757. Umsóknir skulu berast á netfangið stjorn@kvennaathvarf.is fyrir 20. júní en æskilegt er að ný stýra geti hafið störf sem fyrst.
6.6.2006
:
Kynferðisbrotafrumvarpið ekki til afgreiðslu
Frumvarp til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna, sem lagt var fram af dómsmálaráðherra, kom ekki til afgreiðslu á nýafstöðnu þingi. Það er því ljóst að frumvarpið verður endurflutt á næsta þingi og vonandi með einhverjum breytingum. Helst ber að nefna að kvennahreyfingin hefur hvatt til þess að sænska leiðin í vændismálum verði farin, þ.e. að kaupendur vændis verði gerðir ábyrgir.
29.5.2006
:
Skrifað undir samning um Karla til ábyrgðar
Samningur um að endurvekja verkefni Karlar til ábyrgðar hefur verið undirritaður af Félagsmálaráðherra og þeim sálfræðingum sem aðstoða ofbeldismenn við að hætta að beita ofbeldi. Samningurinn felur í sér fjárframlög sem tryggja starfið að minnsta kosti út árið 2007. Að því loknu mun verkefnisstjórn meta þörf á framhaldinu, en hana skipa fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins og Samtaka um kvennaathvarf. Með þessu er mikilvægum áfanga náð í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og staðfestir þá sýn stjórnvalda að ofbeldi er samfélagslegt vandamál á ábyrgð þeirra sem því beita. Stjórn og starfskonur Samtaka um kvennaathvarf fagna áfanganum og hlakka til að fást við verkefnið framundan. Jafnframt er óskað eftir því að Karlar til ábyrgðar sé fyrsta skrefið í átt að umfangsmiklum aðgerðum stjórnvalda til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.
24.5.2006
:
Auglýst eftir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar
Í október á síðasta ári ákvað ríkisstjórnin að semja aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi. Aðdragandinn að þessari ákvörðun var þrýstingur frjálsra félagasamtaka, þar á meðal Samtaka um kvennaathvarf, en nokkur samtök tóku sig saman og sömdu drög að áætlun og lögðu fyrir ráðamenn. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var vel fagnað af þessum samtökum sem öðrum. Í fréttatilkynningu sem ríkisstjórnin sendi frá sér af þessu tilefni kom fram að: Áætlunin skal liggja fyrir til umfjöllunar í ríkisstjórn eigi síðar en 3. mars 2006. Því miður hefur aðgerðaáætlunin ekki enn verið birt og því er hér með auglýst eftir henni.
17.5.2006
:
Tilvist, ást og kynlíf
er yfirskrift fræðslufundar sem verður haldinn á vegum Kynfræðifélags Íslands þann 24. maí n.k. í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð, miðvikudaginn 24. maí kl. 12-13. Flutt verða tvö erindi. Anna Kristjánsdóttir heldur erindi sem hún nefnir Transgender og María Jónsdóttir segir frá verkefninu
8.5.2006
:
Gjöf frá Zontaklúbbnum Emblu
Zontaklúbburinn Embla hefur fært Kvennaathvarfinu peningagjöf, 100.000 krónur til að fjármagna túlkaþjónustu fyrir konur af erlendum uppruna sem sækja í athvarfið. Embla hefur áður fært athvarfinu slíka gjöf og var túlkaþjónusta síðasta árs að miklu leyti fjármögnuð með þeim sjóð. Samtök um kvennaathvarf kunna Emblum bestu þakkir fyrir gjöfina og þann styrk sem það er að mikilvægi starfs okkar sé viðurkennt með þessum hætti.
Fulltrúar íslensku kvennahreyfingarinnar hafa afhent eftirfarandi áskorun Þýska sendiráðinu og Knattspyrnusambandi Íslands:
Í júní og júlí næstkomandi fer fram heimsmeistarakeppnin í fótbolta í Þýskalandi. Því miður hefur vændi verið lögleitt sem hver önnur atvinnugrein þar í landi og samkvæmt alþjóðasamtökunum Coalition Against Trafficing in Women er undirbúningur hafinn til að flytja inn 40.000 konur frá mið- og austur Evrópu. Þessar konur, eiga að ?þjóna? þeim körlum sem leggja leið sína á heimsmeistarakeppnina.
nánar
28.4.2006
:
Umsögn um kynferðisbrotafrumvarp
Stjórn Samtaka um kvennaathvarf skilaði í dag inn umsögn til Alþingis um fyrirliggjandi frumvarp til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Frumvarpið er til bóta í marga staði en jafnframt veldur það vonbrigðum að tillögur samtakanna um heildstæða endurskoðun laga með þátttöku sérfræðinga og hagsmunasamtaka hafi ekki náð fram að ganga. Því miður er ekki tekið tillit til þeirra tillagna sem mótaðar voru af sérfræðingum í málaflokknum og lagðar fram af sameinaðri kvennahreyfingu og lúta að ábyrgð á vændiskaupum, fyrningafrest í kynferðisbrotamálum og fleira. Sjá nánar
umsögn um
frumvarpið.
Ráðstefna á vegum Blátt áfram verður haldin 4. maí 2006 í Kennaraháskólanum. Aðal fyrirlesari er Robert E. Longo, sérfræðingur frá bandaríkjunum sem hefur unnið í málaflokknum síðastliðin 25 ár. Íslensku fyrirlesararnir munu kynna það sem er að gerast í íslensku samfélagi varðandi kynferðislegt ofbeldi. Ráðstefnan hefst klukkan níu og stendur til fimm. Ráðstefnugjald er 9.000 krónur, en 5.000 krónur fyrir nemendur. Skráning fer fram á www.blattafram.is. Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum til að breyta íslensku samfélagi.
nánar
13.4.2006
:
Nordiska kvinnor mot våld
Árleg ráðstefna norrænna kvenna gegn ofbeldi verður haldin að þessu sinni í Færeyjum helgina 25.-27. ágúst. Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku fyrir 1. maí. Sjá nánar
dagskrá og
skráningareyðublað.
3.4.2006
:
Ný lög um heimilisofbeldi
Samþykkt hafa verið lög á Alþingi sem taka á heimilisofbeldi sérstaklega. Héðan í frá varðar það þyngri refsingu að beita einhvern nákominn ofbeldi en einhvern óskyldan. Þannig hefur Alþingi nú viðurkennt alvarleika þeirra brota sem framin eru í skjóli friðhelgi einkalífsins. Nýsamþykkt frumvarp má nálgast
hér.
3.4.2006
:
Kynferðisbrotafrumvarp lagt fram
Í haust fékk Ragnheiður Bragadóttir, lagaprófessor, það verkefni að endurskoða kynferðisbrotakafla almennu hegningarlaganna og koma með tillögur að úrbótum. Tillögurnar hafa legið fyrir um nokkurn tíma og gafst öllum færi á að koma með athugasemdir varðandi þær. Nú hefur dómsmálaráðherra lagt fram
frumvarp byggt á tillögunum og hafa þær ekki tekið neinum breytingum í umsagnaferlinu.
Hér má sjá umsögn Samtaka um kvennaathvarf við tillögurnar á sínum tíma.
29.3.2006
:
Breytingar á stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Á aðalfundi Samtaka um kvennaathvarf þann 28. mars voru endurkjörnar í stjórn: Gunnella Jónsdóttir, Elísabet Hjaltadóttir, Edda Linn Rise og Tatjana Latinovic. Þórdís Guðmundsdóttir færðist úr varastjórn í aðalstjórn og Elín Sigurðardóttir fór úr aðalstjórn í varastjórn. Sonja B. Jónsdóttir hætti stjórnarstörfum og Þórdís Sigurðardóttir kom ný inn í varastjórn. Sjálfkjörið var í öll embætti.
28.3.2006
:
Ársskýrslan komin út
27.3.2006
:
Beitir þú ofbeldi?
Hér má nálgast spurningalistann:
Beitir þú ofbeldi. Fleiri spurningar til að meta ofbeldi má finna
hér. Ef spurningar vakna, endilega hafið samband við Kvennaathvarfið í síma
561 1205.
14.3.2006
:
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf
Samtök um kvennaathvarf boða til aðalfundar þriðjudaginn 28. mars 2006, í Norræna húsinu, klukkan fimm. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Áætlað er að þeim ljúki kl 18:30, en þá verður boðið upp á léttar veitingar.
10.3.2006
:
Óskað eftir áhugasömum í stjórn Samtaka um kvennaathvarf
Aðalfundur Samtaka um kvennaathvarf verður haldinn 28. mars næstkomandi og þá verður kosið til nýrrar stjórnar. Ábendingar um áhugasamt fólk til stjórnarstarfa skulu berast fulltrúa uppstillinganefndar, Maríu Sólbergsdóttur, s: 856 6114, fyrir þriðjudaginn 14. mars.
10.3.2006
:
Umsögn um austurrísku leiðina
Samtök um kvennaathvarf hafa skilað
umsögn um
frumvarp til laga þar sem lagt er til að austurríska leiðin verði farin þegar lögregla er kölluð til út af heimilisofbeldi. Tillögurnar fela á sér að lögregla fái heimild til að vísa manni brott af heimili sínu þegar um ofbeldi er að ræða og þá taki gildi heimsóknarbann viðkomandi manns. Þannig eru ofbeldismenn teknir út af heimilum en ekki konur sem verða fyrir ofbeldi. Samtök um kvennaathvarf styðja þessar tillögur og sama má segja um fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna sem mættu á fund, haldinn í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi í desember á síðasta ári. Því má ætla að forsendur séu til lagabreytinga í þessa veru. Samtök um kvennaathvarf ítreka þó þá ósk sína að til starfa taki vinnuhópur, skipaður sérfræðingum og strjórnmálamönnum sem hafi það verk með höndum að koma með heildstæðar tillögur um aðgerðir, lagalegar og félagslegar til að vinna gegn kynbundnu ofbeldi.
Sameiginleg forsjá barna er falleg hugmyndafræði þar sem reynt er að draga úr því áfalli sem skilnaður foreldra veldur börnum. Ætlunin er að sameiginleg forsjá verði til þess að knýja fram jafna ábyrgð foreldra og tryggja rétt barna til umgengi við báða foreldra sína. Samkvæmt því frumvarpi sem dómsmálaráðherra hefur lagt fram verður sameiginleg forsjá að meginreglu við skilnað foreldra. Í reynd hefur sameiginleg forsjá verið tíðkuð sem meginregla um langan tíma án þess að sérstök umræða hafi farið fram um málið og foreldrar yfirleitt hvattir til að fara þessa leið þegar til skilnaðar kemur. Því ber að fagna að loksins er hafin umræða um sameiginlega forsjá sem meginreglu; kosti hennar og galla.
nánar
1.3.2006
:
Umsögn um kynferðisbrotafrumvarp
Í febrúar kynnti dómsmálaráðuneytið
tillögur að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennu hegningarlaganna. Frumvarpið mun að öllum líkindum líta dagsins ljós í þessum mánuði en almenningi og félagasamtökum gefst kostur á að veita umsögn um tillögurnar áður en frumvarpið er fullbúið. Samtök um kvennaathvarf nýttu sér það að sjálfsögðu og sendu
umsögn sem byggist á þeim tillögum sem samtökin hafa áður kynnt. Nú um mundir eru mörg ráðuneyti að grípa til ráðstafana gegn kynbundnu ofbeldi og má nefna aðgerðaáætlun sem er í smíðum í félagsmálaráðuneytinu, vinnureglur fagfólks sem ritaðar eru í menntamálaráðuneytinu og heilbrigðisráðuneytinu, auk þess sem dómsmálaráðuneytið vinnur að lagabreytingum. Samtök um kvennaathvarf leggur til að lagabreytingar og félagslegar úrbætur séu unnar samhliða og í samráði við félagasamtök sem hafa þekkingu á málefninu. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi verður að vera þverfagleg og unnin með heildstæðum hætti. Athugasemdir við einstaka greinar tillagna dómsmálaráðherra má nálgast í
umsögn Samtaka um kvennaathvarf auk þess sem ítarlegri tillögur má sjá í
tillögum kvennahreyfingarinnar að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi.
Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti boða fjöldi félagasamtaka til fundar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þann 8. mars klukkan 17. Fundastjóri er Guðlaug Þóra Marínósdóttir en dagskráin er sem hér segir.
nánar
27.2.2006
:
Vændiskaup eru ekki íþrótt
Í júní og júlí næstkomandi fer fram heimsmeistarakeppnin í fótbolta í Þýskalandi. Því miður hefur vændi verið lögleitt sem hver önnur atvinnugrein í Þýskalandi og undirbúningur er hafinn til að flytja inn 40.000 konur frá mið- og austur Evrópu til að þjóna þeim körlum sem leggja leið sína á heimsmeistarakeppnina. Með þessu er verið að ýta undir mansal og hlutgera konur sem kynlífsleikföng karlmanna. Vændi hefur alvarlegar líkamlegar og andlegar afleiðingar fyrir konur og aldrei er ásættanlegt að líkamar kvenna gangi kaupum og sölum. Til að lýsa andúð sinni á því að hvatt sé til kynbundins ofbeldis í tengslum við þennan mikla íþróttaviðburð er hægt að skrifa undir áskorun
hér.
24.2.2006
:
Niðurstöður vændisnefndar komnar
Starfshópur, sem skipaður var af dómsmálaráðherra og hafði það verkefni að kynna sér mismunandi löggjöf um vændi o.fl. á Norðurlöndunum og víðar, hefur skilað niðurstöðum. Því miður komst hópurinn ekki að einróma niðurstöðu um að gera eigi kaup á vændi refsiverð eins og Samtök um kvennaathvarf og fleiri samtök, hafa ítrekað lagt til. Starfshópurinn klofnaði í afstöðu sinni til þess hvernig breyta ætti lögum. Skýrsluna má nálgast
hér.
17.2.2006
:
Mikils metinn stuðningur

Kvennadeild Rauða kross Íslands afhenti að þessu sinni Kvennaathvarfinu ágóðann af jólabasar félagsins sem haldinn var í desember. Jólabasar Kvennadeildarinnar er haldinn á hverju ári og fá einhver félagasamtök eða stofnanir að njóta afrakstursins í hvert sinn. Mikil vinna liggur að baki jólabasarnum enda er þar selt jólaskraut sem allt undangengið ár hefur verið nýtt í að útbúa. Samtök um kvennaathvarf þakka kærlega fyrir rausnarlega gjöf og óskar Kvennadeild RkÍ velfarnaðar í því mikilvæga starfi sem þær inna af hendi.
15.2.2006
:
STJÓRNARSKRÁ FYRIR OKKUR ÖLL!
Stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins á að þjóna okkur öllum og endurspegla það samfélag sem við viljum búa í. Til að svo megi verða hafa kvennasamtök hafið undirskriftasöfnun við
tillögur sína um breytingar á stjórnarskránni. Við höfum sögulegt tækifæri til að láta kröfur jafnréttissinna heyrast og breyta hornsteini íslenskra laga í átt til jafnréttis fyrir okkur öll. Nýtum tækifærið, sýnum samstöðu og lýsum yfir stuðningi við tillögurnar á
heimasíðu unifem á Íslandi.
14.2.2006
:
Kynferðisbrotakafli hegningarlaganna endurskoðaður
Birtar hafa verið
tillögur dómsmálaráðherra um endurskoðun á lögum um kynferðisbrot. Tillögunum hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda hafa kvennasamtök þrýst mjög á að slík endurskoðun fari fram. Næstu vikur verður vonandi góð umræða um tillögurnar og munu Samtök um kvennaathvarf skila umsögn um tillögurnar í þessum mánuði. Öllum gefst kostur á að leggja fram umsögn til dómsmálaráðuneytisins áður en
tillögurnar verða fullbúnar sem frumvarp.
10.2.2006
:
Sniðgöngum vændishótel
Mansal er því miður útbreitt vandamál á Norðurlöndunum sem og annars staðar og er í sí auknum mæli tengt vændi og kynlífsþjónustu hvers konar. Norðurlandaráð og stofnanir því tengt hafa tekið frumkvæði í baráttu gegn mansali á Norðurlöndum og fyrir ráðinu liggur nú
tillaga vinstri flokkahópsins um frekari aðgerðir. Lagt er til: Að Norðurlandaráð noti eingöngu þau hótel sem gefa út tryggingu fyrir því að hótelið taki ekki þátt í miðlun á vændi og að allt starfsfólk þess hafi fengið skriflegar leiðbeiningar þar að lútandi. Einnig eru tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar um að: Hún noti eingöngu þau hótel sem gefa út yfirýsingu um að hótelið sé ekki þátttakandi í miðlun á vændi og að allt starfsfólk þess hafi fengið skriflegar leiðbeiningar þar að lútandi og að sett verði upp heimasíða sem skrái öll þau hótel sem geta sýnt fram á að þau séu ekki þátttakendur í miðlun á vændi. Á heimsaíðunni verði skráð þau hótel á Norðurlöndunum og í nágrannalöndum þeirra þar sem samtökin starfa. Samtök um kvennaathvarf styður þessa tillögu og telur það mikilvægt að opinberar stofnanir taki skýra afstöðu gegn vændi og mansali með virkum aðgerðum.
1.2.2006
:
Bubbi og Kvennaathvarfið 1986
Á
heimasíðu Bubba Morthens, tónlistamanns má lesa
áhugaverða grein um hvernig Bubbi studdi Kvennaathvarfið þegar starfsemin átti undir högg að sækja árið 1986. Bubbi hratt af stað tónleikaröð til styrktar Kvennaathvarfinu sem varð öðrum hvatning til að styðja við bakið á hinni nauðsynlegu starfsemi. Á þessum árum fékk Kvennaathvarfið ekki viðeigandi opinberan stuðning og þurfti þar af leiðandi að treysta á styrki frá fyrirtækjum og velvilja einstaklinga eins og Bubba.
18.1.2006
:
Umsögn Samtaka um kvennaathvarf varðandi sameiginlega forsjá sem meginreglu
Samtök um kvennaathvarf hafa skilað
umsögn um
frumvarp sem gerir ráð fyrir að sameiginlega forsjá verði meginregla við skilnað eða sambúðarslit. Varað er við því að slík lög séu sett án þess að tillit sé tekið til þess hvort ofbeldi hafi verið beitt á heimilinu eða í skilnaðarferlinu. Bent er á lög á Nýja-sjálandi þar sem börn eru látin njóta vafans ef um ofbeldi er að ræða og sameiginleg forsjá ekki til umræðu í slíkum tilvikum. Svíar settu lög, sambærileg þeim sem lagt er til að við setjum, fyrir átta árum síðan, en í skýrslu umboðsmanns barna í Svíþjóð kemur fram að þau lög tryggja ekki öryggi barna. Svíar ætla því að breyta sínum lögum fljótlega og taka tillit til ofbeldisþáttarins við ákvörðun um forsjá og umgengni. Ef frumvarpið nær fram að ganga á Alþingi eru Íslendingar tíu árum á eftir nágrannaþjóðunum og hafa að engu reynslu annarra þjóða í þessum málum. Það geta verið dýrkeypt mistök fyrir fjölda barna á Íslandi.
18.1.2006
:
Umsögn Samtaka um kvennaathvarf um heimilisofbeldisfrumvarp
Samtök um kvennaathvarf hafa skilað
umsögn um
frumvarp um breytingar á almennum hegningarlögum er varða heimilisofbeldi. Lýst er ánægju með þann vilja stjórnvalda sem kemur fram í frumvarpinu um að bæta stöðu kvenna sem beittar eru ofbeldi en jafnframt er varað við bjartsýni um að lagabreytingarnar muni hafa tilætluð áhrif. Að mati Samtaka um kvennaathvarf nær frumvarpið ekki að vinna á eðli kynbundins ofbeldis sem lýsir sér yfirleitt í langvarandi kúgun og valdníðslu, heldur er enn einblínt á tiltekin atvik og dæmt út frá þeim. Sömuleiðis leggjum við til að sérfræðingar á sviðinu verði kallaðir til í þeim tilgangi að fara yfir lög, verklagsreglur og aðgerðir á heildstæðan hátt. Það er ljóst að margt þarf að breytast til að öryggi kvenna veðri tryggt og tekið sé alvarlega á stærsta heilsufarsvandamáli kvenna í heiminum sem er kynbundið ofbeldi. Samtök um kvennaathvarf lýsa hér eftir sem hingað til vilja til að deila þeirri reynslu sem býr innan samtakanna til að vinna það verkefni.
3.1.2006
:
Fjölgun kvenna og barna í athvarfinu á síðasta ári
Fleiri konur og börn dvöldu í athvarfinu síðasta ár en árið þar á undan. Alls komu 92 konur og 74 börn til dvalar, en til samanburðar voru 88 konur og 55 börn árið 2004. Dvalardagar kvenna og barna voru samtals 2.422 árið 2005 en 1.568 árið 2004. Þetta stafar aðallega að fjölgun barna sem dvöldust í húsinu. Stuðningsviðtöl hafa aldrei verið fleiri, eða 465 talsins á móti 443 árið á undan. Símtölum í neyðarsíma athvarfsins 561 1205 fjölgaði sömuleiðis úr 1612 í 1855. Alls eru komur kvenna í athvarfið, þ.e. viðtöl og dvalir 557 á árinu og hafa aldrei verið fleiri frá stofnun athvarfsins árið 1982. Hver koma kvennanna í athvarfið er skráð þannig að á bakvið tölurnar sem gefnar eru upp getur sama kona verið að koma oftar en einu sinni. Nánar verður fjallað um tölfræðina í ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf sem væntanleg er í febrúar eða mars.
Mikil umræða var í samfélaginu á síðasta ári um kynbundið ofbeldi og má sennilega rekja aukninguna til þess að konur eru meðvitaðri um rétt sinn og hugsanleg úrræði. Fjölgun barna er athyglisverð, en lögð hefur verið áhersla á góðan aðbúnað þeirra og þess má jafnframt geta að árið á undan voru óvenju fá börn sem komu með mæðrum sínum í athvarfið. Fjölgun dvalardaga er umtalsverð og voru venju fremur margar konur sem þurftu á langri dvöl að halda.
2.1.2006
:
Gleðilegt ár!
Síðasta ár var gríðarlega viðburðaríkt í sögu Kvennaathvarfsins og kvennabaráttunnar. Samstaða kvennahreyfinganna skilaði miklum árangri sem birtist meðal annars í fjölmennasta útifundi Íslandssögunnar í Reykjavík 24. október og þá eru ótaldir hinir fjölmörgu fundir um allt land þann sama dag. Baráttan gegn kynbundnu ofbeldi bar ríkulegan ávöxt þar sem lagabreytingar eru væntanlegar, aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi mun líta dagsins ljós á þessu ári, verklagsreglur fagstétta sömuleiðis og sjaldan hefur almenn umræða og meðvitund almennings risið jafn hátt. Stjórnvöld hafa heldur betur tekið við sér og baráttan gegn kynbundnu ofbeldi er orðið að máli sem allir stjórmálaflokkar munu beita sér í. Samtök um kvennaathvarf þakkar samstarf á liðnu ári og óskar konum og körlum jafnréttis, virðingar, kjarks og velgengni í upphafi nýs árs.